Fylgst með ferðum fálkaunga í raun­tíma í fyrsta sinn - Vísir

Fylgst með ferðum fálkaunga í raun­tíma í fyrsta sinn - Vísir

Fylgst með ferðum fálkaunga í raun­tíma í fyrsta sinn - Vísir

Fálki er útbreiddur en sjaldgæfur varpfugl á Íslandi. Rjúpa er hans mikilvægasta bráð og lengi vel réðst staða fálkastofnsins af rjúpnastofninum. Það gerir hún ekki lengur að því er segir í greinargerðinni. Fálkum hefur fækkað mikið síðustu ár og ræður því ekki rjúpnaþurrð og hungur heldur sjúkdómar, nánar tiltekið fuglaflensan.

Fuglaflensa barst til landsins árið 2021 og hefur síðan geisað hér ítrekað, nú síðast í haust. Stærstur hluti þeirra fálka sem hafa fundist dauðir eða deyjandi frá 2021 var sýktur af henni. Fálki hefur frá árinu 2025 verið flokkaður sem tegund í hættu á íslenska válistanum.

Þrír kvenfuglar og fjórir karlfuglar merktir

Náttúrufræðistofnun hefur rannsakað fálka á Norðausturlandi í áratugi og merkt þá með fóthringjum. Á árunum 1981 til 2023 voru 1.818 fálkar merktir og skráðar voru 358 endurheimtur. Að því er segir í greinargerðinni er það mjög lítið og merkja þyrfti mjög marga fugla til að fá trúverðuga mynd af ferðalögum þeirra.

Í sumar voru sjö ungar úr tveimur hreiðrum nærri Mývatni merktir með senditækjum. Þrír kvenfuglar og fjórir karlfuglar. Verkefnið er samstarf Náttúrufræðistofnunar og Mohamed Bin Zayed Raptor Conservation Fund. Ólafur Karl Nielsen tók þátt í vettvangsvinnunni fyrir hönd stofnunarinnar, ásamt Jimmi Hill og Kjell Janssens frá Instituut voor Natuur- en Bosonderzoek í Belgíu.

Kjell Janssens og Ólafur K. Nielsen festa senditæki á fálkaunga.Ólafur K Nielsen

Senditækin vega um tíu grömm og nota gervihnattarstaðsetningarbúnað til að finna staðsetningu og GSM-kerfið til að senda gögnin. Þau eru knúin af sólarrafhlöðu. Senditækin eru fest á bak fuglsins með ólum um leggina. Ungarnir voru 40 til 42 daga gamlir þegar tækin voru sett á, en fálkaungar verða fleygir um 47 daga gamlir.

Vöktunarmyndavélar voru settar við bæði hreiðrin og ungarnir sýndu merkjunum aldrei nein viðbrögð samkvæmt greinargerðinni.

Fóru allt að 22 kílómetra á einum degi

Í byrjun tóku tækin fjórar til sex staðsetningar á sólarhring. Síðustu vikur hafa þær verið tvær á sólarhring, en frá 3. nóvember er aðeins tekin ein og gögnum miðlað á fimm daga fresti. Í skammdeginu nær sólarsellan ekki að hlaða rafhlöðuna nóg til tíðari mælinga, og kuldinn eykur álagið á hana.

Alls höfðu safnast 2.653 staðsetningar 4. nóvember. Þar af voru 531 frá þeim tíma þegar ungarnir voru enn á framfæri foreldranna og 2.122 eftir að þeir voru flognir að heiman.

Ferðalög sjö ungfálka í haust.Náttúrufræðistofnun

Ungarnir voru á framfæri foreldra sinna í fjórar til sex vikur eftir að þeir yfirgáfu hreiðrið sem stemmir við eldri kannanir. Fyrst héldu þeir sig nærri hreiðrinu en fóru svo lengra og lengra yfir daginn og komu heim til að sofa. Lengst fóru þeir 22 kílómetra.

Kvenfuglarnir fóru yfirleitt lengra en karlfuglarnir. Einn kvenfugl mældist í 22 kílómetra fjarlægð og hinir tveir í 21, en tveir karlfuglar fóru mest sjö kílómetra og tveir 16. Hver og einn ungi yfirgaf æskuslóðirnar án systkina sinna.

Héldu sig á sama stað allan tímann

Eftir að ungarnir fóru að heiman settust þeir fljótt að á ákveðnu svæði en fóru í styttri og lengri könnunarferðir. Þrír héldu tryggð við sama heimasvæðið allt haustið, tveir nærri Mývatni og einn á Melrakkasléttu. Hinir fjórir hafa dvalið á tveimur ólíkum svæðum. Einn fór úr Mývatnssveit í Þistilfjörð, tveir fóru af Melrakkasléttu, annar í fjöllin upp af Bakkafirði og Vopnafirði og hinn á Hérað, og sá fjórði hefur dvalið í Núpasveit og á Tjörnesi.

Að meðaltali spönnuðu ungarnir um 14.400 ferkílómetra, frá 6.000 upp í 22.400, miðað við minnsta fláka sem nær utan um staðsetningar þeirra. Allar staðsetningarnar spanna um 34.500 ferkílómetra. Ungarnir hafa farið um allt norðausturhornið, frá Eyjafirði í vestri og Grímsey og Melrakkasléttu í norðri, til Héraðs og Austfjarða í austri og norðausturhálendisins í suðri.

Ferðalög fálkaunganna sjö. Punktarnir sýna allar 2.122 skráðar staðsetningar fyrir ungu fálkana eftir að þeir yfirgáfu foreldra sína síðsumars og fram til 4. nóvember 2026. Marghliðungur sýnir ytri mörkin á því svæði sem ungarnir hafa flakkað um. Innan þessara ytri marka er litastigull notaður til að sýna þá hluta svæðisins sem fálkarnir nýta mest. Vinsælustu svæðin eru rauð, svo gul og síðan græn eftir fallandi vægi. Miðað við hitakortið eru mikilvægustu svæðin austan og norðan Mývatns annars vegar og hins vegar heiðalönd í Þistilfirði, Núpasveit og á Melrakkasléttu.Náttúrufræðistofnun

Mikilvægust reyndust svæðin norðan og austan Mývatns, þar sem ungarnir eru fæddir og rjúpnaþéttleiki er mikill, og heiðalönd í Núpasveit, Þistilfirði og á Melrakkasléttu. Fimm af sjö ungum dvöldu langdvölum á síðarnefnda svæðinu, 70 til 100 kílómetra frá æskuóðulum sínum. Þessar sveitir eru meðal helstu uppeldisstöðva rjúpu á landinu og Ólafur telur líklegt að rjúpnamergðin ráði því hvar fálkarnir dvelja. Haustfæða þeirra er fyrst og fremst rjúpa, en einnig strandfuglar og andfuglar.

Greinargerðin segir einnig merkilegt að allir ungarnir séu enn á lífi, því afföll íslenskra fálka á fyrsta ári eru um 60%. Fálkarnir bera senditækin ævilangt og ætlunin er að merkja fleiri unga á sama hátt næsta sumar. Vonast er til að hægt verði að fylgja fálkum eftir allt árið, bæði ungum og fullorðnum, og skrá ferðir þeirra, búsvæðaval og afföll.

Greinargerðina má lesa í heild sinni með því að smella hér.

#ferðum #fylgst #fálkaunga #með #rauntíma

Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262967229d/fylgst-med-ferdum-falkaunga-i-rauntima-i-fyrsta-sinn

📰 Aðrar fréttir

Thomas Markle formlega ákærður fyrir vörslu barnakláms
📅 25.11.2026 👁️ 1
Thomas Markle formlega ákærður fyrir vörslu barnakláms
Thomas Markle var í gær formlega ákærður af kviðdómi í Kaliforníu fyrir tvö brot sem varða vörslu barnakláms. Búist er við því að hann verði leiddur f...
Pattstaða komin upp í gíslatöku í stórmarkaði
📅 25.11.2026 👁️ 3
Pattstaða komin upp í gíslatöku í stórmarkaði
Vopnaðir menn tóku um 30 manns í gíslingu í stórmarkaði í borginni Cartagena í Kólumbíu í gær.Pattstaða hefur staðið yfir í margar klukkustundir en lö...
Trump's Nvidia intervention ties his political fortunes to the AI boom
📅 25.11.2026 👁️ 3
Trump's Nvidia intervention ties his political fortunes to the AI boom
The US president's intercession to reinstate CEO Jensen Huang has inextricably linked their fates.
With Huang rescue, Trump riskily ties his political fortunes to Nvidia
📅 25.11.2026 👁️ 0
With Huang rescue, Trump riskily ties his political fortunes to Nvidia
The US president's intercession to reinstate CEO Jensen Huang has inextricably linked their fates.
Clashing political visions reflect a divided Spain ahead of election
📅 25.11.2026 👁️ 4
Clashing political visions reflect a divided Spain ahead of election
Sunday’s election could see a far-right party enter the Spanish government for first time.
Russia's own figures show almost 500,000 deaths in war in Ukraine
📅 25.11.2026 👁️ 5
Russia's own figures show almost 500,000 deaths in war in Ukraine
Leaked data reveal how the full-scale invasion of Ukraine has fundamentally changed mortality patterns in Russia.
Huawei sakfellt fyrir að stela iðnaðarleyndarmálum
📅 25.11.2026 👁️ 6
Huawei sakfellt fyrir að stela iðnaðarleyndarmálum
Bandarískur kviðdómur sakfelldi í dag tæknirisann Huawei fyrir að stela iðnaðarleyndarmálum.Réttarhöldin yfir Huawei stóðu yfir í þrjá mánuði fyrir al...
US preparing to unveil new tariffs on global trading partners
📅 25.11.2026 👁️ 4
US preparing to unveil new tariffs on global trading partners
The new levies would hit many of America's biggest trading partners, including China and the EU.
US preparing to unveil plan for new tariffs on global trading partners
📅 25.11.2026 👁️ 0
US preparing to unveil plan for new tariffs on global trading partners
The new levies would hit many of America's biggest trading partners, including China and the EU.
Households braced for soaring energy bills with new price cap to be announced
📅 25.11.2026 👁️ 4
Households braced for soaring energy bills with new price cap to be announced
Domestic gas prices will rise significantly in January under regulator Ofgem's new price cap.
Gæludýr velkomin á gjörgæsludeild
📅 24.11.2026 👁️ 4
Gæludýr velkomin á gjörgæsludeild
Það hefur þekkst á hjúkrunarheimilum í Frakklandi og víðar að fólk geti haft gæludýr hjá sér. Tilraunaverkefni stendur yfir á gjörgæsludeild spítala í...
Nágrannar flugvallar mótmæla: „Við viljum næturfrið“
📅 24.11.2026 👁️ 4
Nágrannar flugvallar mótmæla: „Við viljum næturfrið“
Meira en 200 nágrannar alþjóðaflugvallarins við Kaupmannahöfn mótmæltu fyrirhugaðri stækkun á flugvellinum fyrir utan ráðhúsið í Tårnby í dag. Einhver...
Sigga Ósk keppir á lokakvöldi Miss Universe - Vísir
📅 24.11.2026 👁️ 4
Sigga Ósk keppir á lokakvöldi Miss Universe - Vísir
Keppnin fer fram í borginni San Juan í Puerto Rico þetta árið og fór undankeppni Miss Universe fram aðfaranótt mánudags. Þetta er 75. keppnin sem hald...
One in three 16 to 24-year-olds in Britain have never had sex
📅 24.11.2026 👁️ 5
One in three 16 to 24-year-olds in Britain have never had sex
More young people in Britain have never had sex, but many are sexting and watching porn. 
Thomas Markle indicted by federal grand jury in US for possessing child sex abuse images
📅 24.11.2026 👁️ 3
Thomas Markle indicted by federal grand jury in US for possessing child sex abuse images
The FBI arrested Markle on 6 November after a search of a storage unit he had allegedly rented in Los Angeles uncovered the abuse material.
Thomas Markle indicted in US for possessing child sex abuse images

China-linked network using AI fakes to smear Taiwan election candidates, BBC Verify finds
📅 24.11.2026 👁️ 4
China-linked network using AI fakes to smear Taiwan election candidates, BBC Verify finds
The network attacked key figures in the ruling DPP, including President Lai and mayoral candidate Shen.
Vill að þingið þrýsti á Pútín ef Trump geti það ekki - Vísir
📅 24.11.2026 👁️ 4
Vill að þingið þrýsti á Pútín ef Trump geti það ekki - Vísir
„Ef Rússarnir halda áfram að þykjast minnislausir og dæla í okkur sagnfræði í stað þess að ná fram niðurstöðum í viðræðum, mun sá tími koma að það tek...
„Raddir þeirra fá að heyrast“ - Vísir
📅 24.11.2026 👁️ 5
„Raddir þeirra fá að heyrast“ - Vísir
„Markmiðið er þar að stuðla að auknu samræmi, sérþekkingu og jafnræði við meðferð barnaverndarmála óháð því hvar barnið á heima,“ segir Inga Sæland, m...
Ný gögn varpa ljósi á gríðarlegt mannfall Rússa – Yfir 700 þúsund hermenn taldir hafa fallið
📅 24.11.2026 👁️ 5
Ný gögn varpa ljósi á gríðarlegt mannfall Rússa – Yfir 700 þúsund hermenn taldir hafa fallið
Rúmlega 700 þúsund rússneskir hermenn eru taldir hafa fallið í stríðinu í Úkraínu samkvæmt nýrri greiningu tveggja óháðra rússneskra fjölmiðla, Meduza...
Ministers ask public for views on changing age of consent
📅 24.11.2026 👁️ 5
Ministers ask public for views on changing age of consent
Some campaigners have argued that different limits should apply, depending on the age gap between the people involved.
Nuclear test veterans speak to BBC about search for justice
📅 24.11.2026 👁️ 5
Nuclear test veterans speak to BBC about search for justice
Andy Burnham says veterans will get 'the full truth' as he confirmed plans for an investigation into the health legacy of Britain's Cold War-era atomi...
Nuclear test veterans will get full truth, says Burnham, as he confirms independent panel
📅 24.11.2026 👁️ 4
Nuclear test veterans will get full truth, says Burnham, as he confirms independent panel
The prime minister says a Hillsborough-style independent panel will examine the health legacy of Britain's Cold War-era atomic programme.
Áform um djúpsjávarhöfn í Hvalfjarðarsveit
📅 24.11.2026 👁️ 6
Áform um djúpsjávarhöfn í Hvalfjarðarsveit
Ný djúpsjávarhöfn á að rísa í Hvalfjarðarsveit. Galtarhöfn ehf. áformar bygginguna og verkefnastjóri er Gunnar Þór Gunnarsson. Gert er ráð fyrir að hö...
Bonnie Blue heldur áfram að hneyksla – Nú með því að bjóða upp á eigin brjóstamjólk
📅 24.11.2026 👁️ 6
Bonnie Blue heldur áfram að hneyksla – Nú með því að bjóða upp á eigin brjóstamjólk
Breska klámstjarnan Bonnie Blue heldur áfram að valda usla með framgöngu sinni, nú með því bjóða ungum karlmönnum að drekka brjóstamjólkina sína. Hin ...
Íslendingar efstir vestrænna þjóða á lista sem við viljum ekki vera á
📅 24.11.2026 👁️ 7
Íslendingar efstir vestrænna þjóða á lista sem við viljum ekki vera á
Ísland er í efsta sæti vestrænna þjóða og í 20. sæti á heimsvísu í fjölda þeirra sem vinna tvær vinnur eða fleiri. Er það til merkis um að ein vinna d...
Bjóða 90% afslátt af heitu vatni en laugin stendur enn tóm
📅 24.11.2026 👁️ 7
Bjóða 90% afslátt af heitu vatni en laugin stendur enn tóm
Magnús Barðdal, sveitarstjóri Skagafjarðar, segir heilbrigðisráðherra benda á Heilbrigðisstofnun Norðurlands þegar hann leitar svara um hvort endurhæf...
Telja að áhersla á hallalaus fjárlög geti aukið niðursveiflu
📅 24.11.2026 👁️ 6
Telja að áhersla á hallalaus fjárlög geti aukið niðursveiflu
Konráð Guðjónsson hagfræðingur og Már Wolfgang Mixa, prófessor við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands, telja að ekki sé raunveruleg þörf á því að rík...
Augljóst að Frederiksen sé að daðra við samsæriskenningu
📅 24.11.2026 👁️ 6
Augljóst að Frederiksen sé að daðra við samsæriskenningu
„Það blasir alveg við að Mette Frederiksen slær í og úr og daðrar að einhverju leyti við kenninguna um útskiptin miklu eða The great replacement,“ seg...
Netþrjótar komist inn í kerfi CIA - Vísir
📅 24.11.2026 👁️ 7
Netþrjótar komist inn í kerfi CIA - Vísir
AP segir að brotist hafi verið inn í kerfi tileinkað ákveðinni tegund upplýsingaöflunar sem reiði sig á gögn sem eru þegar aðgengileg á opinberum vett...
Kalkúnum stolið í skjóli nætur - Vísir
📅 24.11.2026 👁️ 7
Kalkúnum stolið í skjóli nætur - Vísir
Sandra Björk Ingadóttir og Kristín Einarsdóttir áttu fuglana þrjá og bjuggu þeir í fjárhúsi í nágrenni við Garðinn. Þær eru eins konar áhugabændur og ...
Unnar hrelldi móður og son hennar – „lögga her lögga thar eg kem til thin tík“
📅 24.11.2026 👁️ 6
Unnar hrelldi móður og son hennar – „lögga her lögga thar eg kem til thin tík“
Síbrotamaðurinn Unnar Sigurður Hansen var í dag dæmdur í 2 ára og 8 mánaða fangelsi fyrir rangar sakargiftir, hótanir og ógnanir gegn mæðginum auk ítr...
Ætt­leiddur á fer­tugs­aldri - Vísir
📅 24.11.2026 👁️ 7
Ætt­leiddur á fer­tugs­aldri - Vísir
Samkvæmt umfjöllun danska ríkisútvarpsins kom Christian á heimili fósturforeldra sinna Bente og Jes Thorup Børjesson fjögurra ára gamall. Hann hafði á...
Þremur kalkúnum stolið í Garðinum
📅 24.11.2026 👁️ 8
Þremur kalkúnum stolið í Garðinum
Þremur kalkúnum var stolið af ræktendum í Garðinum í Suðurnesjabæ um helgina. Sandra Björk Ingadóttir og Kristín Einarsdóttir áttu fuglana og hafa ver...
Huawei found guilty of stealing trade secrets but acquitted of racketeering
📅 24.11.2026 👁️ 6
Huawei found guilty of stealing trade secrets but acquitted of racketeering
The verdict follows a months-long trial in New York.
Fjögur koma til greina í forstjórastólinn
📅 24.11.2026 👁️ 4
Fjögur koma til greina í forstjórastólinn
Fjórir umsækjendur koma til greina í starf forstjóra Landsvirkjunar eftir starfsviðtöl síðustu vikna. Viðskiptablaðið greinir frá.Samkvæmt heimildum V...
„Hættulegir einstaklingar hafa komist upp með að hóta lögreglumönnum“
📅 24.11.2026 👁️ 4
„Hættulegir einstaklingar hafa komist upp með að hóta lögreglumönnum“
„Ef þú ert að stoppa einhverja menn sem eru þekktir glæpamenn, átt þú þá að hætta að stoppa þá? Áttu þá bara að hætta og leyfa þeim að halda áfram að ...
Efasemdir um Stafræna heilsu
📅 24.11.2026 👁️ 7
Efasemdir um Stafræna heilsu
Áður en Alþingi hefur samþykkt lög um Stafræna heilsu er heilbrigðisráðuneytið á lokametrum með umfangsmikið útboð vegna verkefnisins. Frestur til að ...
Himinlifandi með leiguverðið á Íslandi – Leigir þetta fyrir 82 þúsund krónur á mánuði
📅 24.11.2026 👁️ 4
Himinlifandi með leiguverðið á Íslandi – Leigir þetta fyrir 82 þúsund krónur á mánuði
Pazos, ungur spænskur þjónn, sér ekki eftir því að hafa flutt til Íslands. Hann er ánægður með húsaleiguna og launin en viðurkennir að veðrið mætti ve...
Hug­rekki, mandarínur og máttur barnanna - Vísir
📅 24.11.2026 👁️ 6
Hug­rekki, mandarínur og máttur barnanna - Vísir
Ragnheiður Harpa er fædd árið 1988 og hefur komið víða við í bókmenntaheiminum en hún hlaut nýverið Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar fyrir hand...
Björgunarsveit á Djúpavogi grátt leikin við gjaldþrot fjölskyldufyrirtækis á Selfossi
📅 24.11.2026 👁️ 4
Björgunarsveit á Djúpavogi grátt leikin við gjaldþrot fjölskyldufyrirtækis á Selfossi
Þann 21. október voru tvö fjölskyldufyrirtæki á Selfossi, í eigu sömu eigenda, lýst gjaldþrota. Samkvæmt heimildum DV á lítil björgunarsveit, Bára á D...
Fimm úr sömu fjölskyldu fundust látin – Óhugnanlegt símtal til neyðarlínunnar
📅 24.11.2026 👁️ 3
Fimm úr sömu fjölskyldu fundust látin – Óhugnanlegt símtal til neyðarlínunnar
Harmleikur átti sér stað í Plant City í Flórída í Bandaríkjunum síðastliðinn fimmtudag þegar fimm manna fjölskylda fannst látin á heimili sínu.Lögregl...
Skiptar skoðanir um Hagaskólamálið – „Er þetta framtíðin hjá okkur?“
📅 24.11.2026 👁️ 4
Skiptar skoðanir um Hagaskólamálið – „Er þetta framtíðin hjá okkur?“
„Mér fannst þetta bara fáránlegt. Ég skildi ekki hvaða erindi þessi frétt átti við okkur. Svo auðvitað komu fréttir um að þetta hafi verið alvarlegra ...
Flateyringar ræddu ásýnd snjóflóðavarna á íbúafundi
📅 24.11.2026 👁️ 4
Flateyringar ræddu ásýnd snjóflóðavarna á íbúafundi
Eftir snjóflóðið sem féll á Flateyri 2020 og fór að hluta yfir varnargarðinn þurfti að bæta við varnarmannvirkin fyrir ofan bæinn. Framkvæmdir hófustu...
Aukið eftirlit við Mjódd eftir blóðuga árás
📅 24.11.2026 👁️ 5
Aukið eftirlit við Mjódd eftir blóðuga árás
Myndband af hópárás ungmenna á feðga fyrir utan Mjóddina í Breiðholti hefur verið í dreifingu á samfélagsmiðlum. Lögreglan segir að svona mál séu ekki...
Barn mætti með þrívíddar­prentað vopn í skólann - Vísir
📅 24.11.2026 👁️ 5
Barn mætti með þrívíddar­prentað vopn í skólann - Vísir
Þetta segir Grétar Stefánsson, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, í samtali við fréttastofu. Hann gat ekki staðfest nafn seinni skól...
Substance released at Don Toliver concert could be linked to robberies, police say
📅 24.11.2026 👁️ 3
Substance released at Don Toliver concert could be linked to robberies, police say
Police are investigating a possible link between the Co-op Live evacuation and reported robberies.
Substance at Don Toliver Manchester show may be linked to robberies, police say
📅 24.11.2026 👁️ 4
Substance at Don Toliver Manchester show may be linked to robberies, police say
Police are investigating a possible link between the Co-op Live evacuation and reported robberies.
Þurftu að flýja heimilið en enginn var ákærður
📅 24.11.2026 👁️ 6
Þurftu að flýja heimilið en enginn var ákærður
Það vakti athygli og óhug sumarið 2025 þegar greint var frá því að hópur vopnaðra og grímuklæddra manna hefði setið fyrir lögreglumanni við heimili ha...
Engin átök og hópamyndun inni í Mjóddinni sjálfri
📅 24.11.2026 👁️ 5
Engin átök og hópamyndun inni í Mjóddinni sjálfri
„Mín upplifun er að þetta sé svolítið rangur fréttaflutningur um Mjóddina. Hópamyndun ungmenna sem kemur fram í fréttunum á ekki heima hér inni í Mjód...