Á annað hundrað manns verða í ÍR-heimilinu á morgun að telja atkvæði en í kvöldfréttum Sýnar var rætt við Evu Bryndísi Helgadóttur, formann yfirkjörstjórnar í Reykjavík, og sagði hún að von væri á miklum fjölda atkvæða.
Hvenær áttu von á tölum hérna annað kvöld?
„Svona upp úr miðnætti, myndi ég segja, milli tólf og eitt. Enda eru þetta um þrjátíu þúsund atkvæði sem mynda þennan haug af fyrstu tölum,“ segir Eva Bryndís.