Undanfarinn sólarhring hafa gerviaðgangar, svokallaðir bottar, látið á sér kræla á Facebook-síðu Viðreisnar. Um er að ræða fjöldann allan af athugasemdum undir færslu með mynd af hluta þingflokks Viðreisnar og einnig undir myndböndum af Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra.
Bottarnir, sem eru á bilinu 30-40 talsins, hafa skrifað jákvæðar athugasemdir í garð Viðreisnar eins og til dæmis: „Ég þakka Viðreisn fyrir að kenna mér að það að vera ég er nóg“ og „Þetta er ekki pólitík. Þetta er mannúð í sinni fegurstu mynd.“
Verðum að vera á varðbergi
Elfa Ýr Gylfadóttir, framkvæmdastjóri fjölmiðlanefndar, segir að bottar hafi sést áður í tengslum við samfélagsumræðu, sem oft er þá tengd pólitík. Meiri hætta sé á afskiptum og íhlutun erlendra botta þegar kemur að umræðuefnum eins og ESB, NATO og svo framvegis.
„Við þurfum að vera sérstaklega á varðbergi þegar um er að ræða kosningar, því það er viðkvæmt tímabil í sérhverju lýðræðisríki,“ segir Elfa og bætir við:
„Með hverjum kosningum sem verða þá náttúrulega lærir fólk betur hvernig er hægt að hafa áhrif á og stýra umræðunni og þarna er náttúrulega Ísland bara ekkert öðruvísi en þau lönd í kringum okkur sem við erum að bera okkur saman við.“
Ekki á vegum Viðreisnar og ekki í þágu flokksins
Svanborg Sigmarsdóttir, framkvæmdastjóri Viðreisnar, fékk veður af bottunum fyrir nokkrum dögum og hefur reynt að komast að því hver stendur á bak við þá:
„Við vitum ekkert hver stendur á bak við þessa botta og þeir eru alls ekki í þágu Viðreisnar og Viðreisnarfólk stendur ekki fyrir þeim,“ segir Svanborg Sigmarsdóttir, framkvæmdastjóri Viðreisnar. Óskar hún eftir að þar til gerð yfirvöld rannsaki þetta nánar, enda sé upplýsingaóreiðan sem þessir bottar eiga að skapa alvarleg:
„Við tökum þessa hættu á upplýsingaóreiðu mjög alvarlega og viljum gjarnan að þar til bær yfirvöld kanni þetta nánar hver stendur á bak við þetta. Því markmiðið virðist vera augljóst: Það er að skapa upplýsingaóreiðu til þess að trufla umræðu í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu í haust.“