Þrítugri konu og 23 ára karlmanni hafa verið birt fyrirköll og ákæra í Lögbirtingablaðinu.
Ákærandi er Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra en fólkinu er gefið að sök að hafa sunnudaginn 6. júlí 2025 verið fótgangandi á leið sinni í gegnum Héðinsfjarðargöng, frá Ólafsfirði til Siglufjarðar. Með þessu fóru þau gegn fyrirmælum umferðarmerkja sem banna umferð gangandi vegfaranda í göngunum.
Fólkið ber erlend nöfn en eru með íslenska kennitölu. Heimilisfang karlmannsins er óþekkt en konan býr í Reykjavík.
Málið verður þingfest í Héraðsdómi Norðurlands eystra á Akureyri þann 23. júní næstkomandi.