Sjálfstæðisflokkurinn mælist með mest fylgi allra stjórnmálaflokka í Reykjavík í nýjasta Þjóðarpúlsi Gallups. Flokkurinn bætir við sig 6,8 prósentustigum frá því í sveitarstjórnarkosningum árið 2022 og mælist með 31,3% fylgi. Gangi sú könnun eftir yrði það mesta fylgi flokksins frá 2010.
Næst á eftir Sjálfstæðisflokknum mælist Samfylkingin með 21,5% en flokkurinn fékk 20,3% atkvæða í síðustu kosningum.
Þá mælist Miðflokkurinn með 10,9%, Vinstrið með 11,3%, Viðreisn með 9,8% og Sósíalistaflokkur Íslands með 4,8% en fast á hæla Sósíalistaflokksins mælist Framsóknarflokkurinn með 4,7%.
Ef niðurstöður könnunarinnar gengju eftir næðu aðrir flokkar ekki manni inn í borgarstjórn. Píratar og Flokkur fólksins mælast með 2,3% fylgi hvor, Góðan daginn framboð með 0,6% og Okkar borg með 0,4%.
Niðurstöðurnar boða breytt landslag
Niðurstöður könnunar Gallup draga upp breytta mynd af landslagi borgarstjórnar. Ef þær rættust fengi Sjálfstæðisflokkurinn 8 fulltrúa í borgarstjórn, tveimur fleiri en á yfirstandandi kjörtímabili. Fulltrúafjöldi Samfylkingarinnar héldist óbreyttur í 5.
Þá fengju Vinstrið og Miðflokkurinn þrjá fulltrúa hvor. Miðflokkurinn náði ekki inn í borgarstjórn í síðustu kosningum. Vinstri græn fengu einn fulltrúa kjörinn og Sanna Magdalena Mörtudóttir var kosin í borgarstjórn fyrir Sósíalista. Saman standa þau að Vinstrinu í dag.
Viðreisn eykur fylgi sitt og fengi tvo fulltrúa í stað eins.
Framsókn tapar þremur fulltrúum
Á meðan einhverjir flokkar virðast ætla að bæta við sig í kosningunum á morgun benda niðurstöður könnunarinnar einnig til fylgistaps flokka sem gegnt hafa lykilhlutverki í borgarstjórn á undanförnu kjörtímabili.
Framsóknarflokkurinn fer úr fjórum fulltrúum í einn. Sósíalistar fengu tvo fulltrúa síðast en mælast nú með einn eftir klofninginn á kjörtímabilinu. Þá missa Píratar alla sína þrjá fulltrúa og Flokkur fólksins sinn eina fulltrúa.
Sjötti maður Samfylkingar gæti skákað þriðja manni Miðflokksins
Afar mjótt er þó á munum í skoðanakönnuninni og geta minnstu breytingar haft mikil áhrif á hvernig sætin í borgarstjórn skiptast á milli flokka.
Til að mynda munar litlu að Samfylkingin skáki Miðflokknum og bæti við sig sjötta manninum á kostnað þriðja manns Miðflokksins. Það myndi svo riðla stöðunni þegar kemur að meirihlutamyndun.
Líkur á meirihluta til hægri
Miðað við niðurstöður könnunarinnar gætu Sjálfstæðisflokkurinn, Miðflokkurinn og Framsóknarflokkurinn myndað eins manns meirihluta í borgarstjórn. Eins gæti Sjálfstæðisflokkur myndað meirihluta með Miðflokki og Viðreisn, þeir flokkar fengju samkvæmt könnuninni 13 af 23 sætum í borgarstjórn.
Ekki er möguleiki á meirihluta til vinstri miðað við þessa skoðanakönnun.
Sjálfstæðisflokkurinn og Samfylkingin gætu myndað meirihluta með samtals 13 borgarfulltrúa.
Fréttin hefur verið leiðrétt. Sagt var að þetta yrði besta niðurstaða Sjálfstæðisflokksins frá 2006, en flokkurinn fékk líka meira fylgi í kosningunum 2010, þegar hann fékk 33,6%.