Hjartaskurðlæknirinn Philip Ovadia, sem hefur framkvæmt yfir 3.000 hjartaaðgerðir á ferlinum, hefur varað við algengum matvælum sem hann segir eiga stóran þátt í hjartasjúkdómum.
Að hans sögn eru mörg þeirra matvæla sem valda skaða á hjarta- og æðakerfinu að finna í eldhúsum flestra heimila.
„Þessi matur veldur insúlínviðnámi, ýtir undir langvarandi bólgur og eyðileggur hjartað hægt og rólega,“ segir hann samkvæmt frétt VT.co.
Í viðtölum hefur hann sagt að hann sjái skýr áhrif mataræðis þegar hann framkvæmir hjartaaðgerðir og að greinileg merki sjáist hjá fólki sem hafi ekki hugað nægilega vel að mataræðinu.
Ovadia segir að margir telji rautt kjöt, salt og mettaða fitu vera helstu sökudólgana þegar kemur að hjartasjúkdómum. Hann telur hins vegar að raunverulega vandamálið sé mikið magn af mjög unnum kolvetnum í daglegu mataræði.
Samkvæmt honum eru helstu áhættuþættirnir:
- insúlínviðnám
- langvarandi hár blóðsykur
- bólgur í líkamanum
- og fita í kringum innri líffæri
Meðal þeirra matvæla sem hann ráðleggur fólki að draga verulega úr neyslu á eru:
-
- hvítt brauð
- morgunkorn
- pasta
- kartöfluflögur
- bragðbætt jógúrt
- ávaxtasafar
- skyndihafragrautur og ýmsar pakkaðar heilkornavörur
Hann bendir á að jafnvel matvæli sem markaðssett eru sem holl geti innihaldið mikið magn hreinsaðra kolvetna.
„Fitusnautt granóla, heilhveitibrauð og hrískökur eru oft full af hreinsuðum kolvetnum sem valda endurteknum hækkunum á blóðsykri og insúlíni,“ segir hann.
Að mati Ovadia stuðlar slíkt mataræði að langvarandi bólgum og skapar það umhverfi í líkamanum sem geti leitt til hjartaáfalla.
Í staðinn mælir hann með því að fólk borði frekar minna unnin matvæli, svo sem grænmeti, próteinríkan mat og náttúrulega fitu.
Fleiri sérfræðingar hafa á undanförnum árum varað við ofurunnum matvælum.
Hjartaskurðlæknirinn Jeremy London hefur til að mynda sagt að fólk ætti að forðast þann mat sem „amma viðkomandi átti ekki í eldhúsinu sínu.“