Hildur Björndóttir oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík fer ófögrum orðum um Sönnu Magdalenu Mörtudóttur oddvita Vinstrisins. Segir Hildur Sönnu hafa varpað fram kosningaloforðum sem ómögulegt sé að standa við og komist upp með það. Segir Hildur Sönnu vera súkkulaðikleinu sem ljúgi.
Hildur lét þessi orð falla í viðtali við hlaðvarpið Þjóðmál en þessi orð hennar má heyra í myndbandi úr þættinum sem deilt er á samfélagsmiðlum hlaðvarpsins.
Þjóðmálum stýrir Gísli Freyr Valdórsson sem hefur lengi verið virkur þátttakandi í starfi Sjálfstæðisflokksins og var um tíma aðstoðarmaður ráðherra.
Hildur var gestur í þættinum ásamt Ásdísi Kristjánsdóttur oddvita Sjálfstæðisflokksins og bæjarstjóra í Kópavogi. Hildur segir í myndbrotinu um Sönnu:
„Þetta er svo frústrerandi að horfa einhvern veginn á vinstri flokkana lofa fólki öllu fögru og koma fram með einhver plön sem stemma ekki. Það er bara engin leið til að fá þau til að stemma. Einmitt bara Sanna sem einhvern veginn fær oft að vera algjör súkkulaðikleina í umræðunni, sem boðar hérna stórkostlega uppbyggingu á félagslegu húsnæði með aukinni skuldsetningu Félagsbústaða. Ber það saman við einhver fasteignafélög á markaði og ætlar að ljúga því að fólki að það verði einhver hagstæð leiga. Þetta er bara della.“
Gísli Freyr sýnir því ekki áhuga að biðja Hildi um rökstuðning eða að athuga hvort hún fari rétt með orð Sönnu en segir:
„Þetta gengur ekki upp.“
Húsnæði og leiga
Óljóst er hvar og hvenær Sanna á að hafa látið þessi orð falla en eins og áður segir biður Gísli Freyr ekki um heimild fyrir þessari fullyrðingu. Stefnuskrá Vinstrisins, á heimasíðu framboðsins, er orðuð á mun almennari og óljósari hátt:
„Húsnæði á að vera heimili og skal byggt fyrir fólk en ekki fjárfesta. Það á ekki að braska með heimili fólks! Reykjavíkurborg á að auka framboð á húsnæði með afgerandi hætti til þess að fólk geti eignast eða leigt heimili til framtíðar með raunverulegt húsnæðisöryggi að leiðarljósi. Borgin á að forgangsraða lóðum til óhagnaðardrifinnar uppbyggingar og stuðla að eðlilegri endurnýjun eða endurnýtingu á þeim byggingum sem þegar eru til staðar.“
Við stutta leit finnst hins vegar skoðanagrein sem Sanna skrifaði fyrir fjórum árum í aðdraganda síðustu borgarstjórnarkosninga þar sem hún leitaðist við að færa rök fyrir því að Félagsbústaðir hefðu fjárhagslegt bolmagn til að standa fyrir byggingu á 3.000 nýjum íbúðum. Þar minnist hún ekki á að leiga á slíkum íbúðum eigi að vera hagstæðari en á markaði en það hefur væntanlega verið markmiðið.
Ljóst er að á undanförnum árum hafa verið reistar nýjar íbúðir á höfuðborgarsvæðinu af t.d. óhagnaðardrifnum félögum eins og Bjargi þar sem leigan er almennt hagstæðari en gengur og gerist á almennum markaði og því virðist slíkt ekki vera ómögulegt eins og Hildur virðist vera að fullyrða ekki nema þá að hún sé eingöngu að vísa til Félagsbústaða í þessu samhengi.
Hvað er súkkulaðikleina?
Eitthvað ber á því á samfélagsmiðlum að fólk telji orðið súkkulaðikleina vera niðrandi í garð Sönnu og þar sé einna helst verið að vísa til húðlitar hennar.
Súkkulaðikleina mun hins vegar vera orð sem ekki síst var notað í leikjum barna áður fyrr þar sem eitt þeirra fær að vera stikkfrí, þ.e.a.s. ef t.d. um einhvers konar eltingaleik var að ræða þá var ekki hægt að klukka barnið eða ná því. Viðkomandi barn var þá kallað súkkulaðikleina. Væntanlega er Hildur þá að meina að Sanna sé stikkfrí með loforð sín og komist upp með að rökstyðja þau ekki sem Hildur sjálf færir þó engin rök fyrir í umræddu myndbroti.
Hvort þetta orð sé niðrandi í garð Sönnu verða lesendur að meta sjálfir en ljóst er það er ekki meint sem hrós.