„Sam­fylkingin í Reykja­vík er kvenna­gildra“ - Vísir

„Sam­fylkingin í Reykja­vík er kvenna­gildra“ - Vísir

Fjöldi oddvita vill innleiða heimgreiðslur og leyfa vinnustaðaleikskóla. Aðrir vilja meiri fókus á uppbyggingu borgarrekinna leikskóla og bætt laun, kjör og starfsaðstæður starfsfólks. Þá nefndu margir lengingu fæðingarorlofs en það er á ábyrgð ríkisins.

Pétur var fyrst spurður um það hvað hann ætlaði að gera fyrst hann vildi ekki leyfa fyrirtækjaleikskóla eða heimgreiðslur. Hann sagði vandamálið við leikskólakerfið að viðhaldi hefði ekki verið sinnt og að það hefði verið erfitt að manna þá. Hann sagði það „þrotaða lausn“ að fá fyrirtæki til að leysa vandann. Hann sagði breytingar í vændum og nefndi til dæmis að Samfylkingin vilji setja aukafjármögnun í mönnun og starfsaðstæður á leikskólum. Þau vilji taka við 1.500 börnum og taka við yngri börnum. Hann sagði stóra verkefnið að brúa bilið frá fæðingarorlofi að leikskóla.

Allir oddvitar eru sammála um að ekki sé staðið vel að leikskólamálum í Reykjavík. Sýn

Það hafi ekki gengið á þessu kjörtímabili en hann hafi trú á því að það geti gerst á næsta kjörtímabili. Þá standi til að lögfesta leikskólastigið á Alþingi og þó svo að áhrif þess muni taka mörg ár muni það hafa áhrif.

Hann sagði meiri fyrirsjáanleika með Reykjavíkurleiðinni en að það ætti eftir að koma meiri reynsla á hana.

Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins, greip þá orðið og varaði við málflutningi Samfylkingarinnar. Þau boði lögfestingu leikskólastigs og 1.500 ný pláss en 600 milljónir í starfsfólkið og starfsaðstæður á ári. Hún sagði þetta um 60 stöðugildi sem manni um 250 pláss en eftir séu 1.250 pláss.

„Þetta er plan sem stemmir ekki.“

Hildur sagði að leikskólavandinn yrði aldrei leystur með því að lögfesta leikskólastigið. Það vanti 2.400 leikskólakennara á Íslandi og þau hafi séð að með einu leyfisbréfi hafi mikill fjöldi þeirra fært sig á grunnskólastigið. Hún segir ekki eina lausn á málinu og nefndi sem dæmi fyrirtækjaleikskóla og nýtt daggæslustig.

Leikskólakerfi sem ekki virkar

„Við erum stolt af leikskólakerfinu okkar, en það er ekki alveg að virka,“ sagði hún og að nýtt daggæslukerfi fyrir yngstu börnin væri hagkvæmari lausn og raunhæfari.

„Við styðjum líka heimgreiðslur og þá segir Samfylkingin að það sé kvennagildra. Samfylkingin í Reykjavík er kvennagildra,“ sagði þá Hildur og að með því að leysa ekki leikskólavandann á kjörtímabilinu hafi það gert það að verkum að fjöldi kvenna sitji fastur heima.

Pétur sagði þá að með fyrirtækjaleikskólum væri verið að opna á tvöfalt kerfi sem honum hugnast ekki, kerfi sem nýtist þeim sem vinna hjá ákveðnum fyrirtækjum eða eiga meiri pening.

Einar Þorsteinsson, oddviti Framsóknarflokksins, sagði það markmið að eyða biðlistum í leikskóla og gagnrýndi að Samfylkingin ætlaði að beita sömu lausnum og áður og vonast eftir betri lausn. Hann sagði þurfa nýjar lausnir samhliða því að reka sterkt leikskólakerfi. Hann nefndi í því samhengi fyrirtækjaleikskóla og sagði þann sem stendur á móti svona hugmynd aldrei hafa þurft að taka á móti tugum mótmælandi foreldra sem ekki fengu pláss fyrir börn sín. Hann sagði Framsóknarflokkinn styðja heimgreiðslur og nefndi breytingu sem innleidd var á kjörtímabilinu þannig að foreldrar barna sem eru 18 mánaða og eldri fái aukna niðurgreiðslu séu börn þeirra enn hjá dagmæðrum og enn á bið eftir leikskólaplássi.

Grundvallarmunur á fæðingarorlofi og heimgreiðslum

Björg Magnúsdóttir oddviti Viðreisnar sagði að enginn væri að tala um vinnustaðaleikskóla ef leikskólamálin í Reykjavík væru í góðum málum. Það þurfi fjölbreyttar lausnir og svigrúm í kerfið. Hún sagði grundvallarmun á fæðingarorlofi og heimgreiðslum því að í fæðingarorlofi séu öll réttindi á vinnumarkaði tryggð, það sé ekki svo þegar foreldrar þiggja heimgreiðslur. Hún sagðist frekar styðja lengingu fæðingarorlofsins en það væri á ábyrgð ríkisins.

„Ef sveitarfélagið tekur upp heimgreiðslur þá erum við að lengja fæðingarorlofið án allra réttinda hjá nýbökuðum foreldrum,“ sagði Björg og að fjárhagur þeirra myndi skaðast enn frekar. Hún sagðist styðja vinnustaðaleikskóla og fleiri úrræði fyrir yngstu börnin.

Sanna greip þá orðið og sagði Einar tala þannig að það sem gerist í borginni sé alltaf einhverjum öðrum að kenna. Öll sem eru í meirihluta beri ábyrgð og þau eigi að leitast við að sannfæra aðra í meirihluta um að verkefnið sé góð hugmynd. Hún sagði vitað að foreldrar búi við mikið álag og að samstarfsflokkarnir hafi innleitt Reykjavíkurleiðina til að bregðast við. Það eigi eftir að meta áhrif leiðarinnar og sjá hvað kemur út úr henni.

Sanna sagði nauðsynlegt að bæta starfsaðstæður og laun og tryggja að starfsfólk hefði allt sem það þarf til að sinna sinni vinnu. Hún vill því setja meiri peninga í rekstur leikskólanna og viðhald frekar en í fyrirtækjaleikskóla og heimgreiðslur.

Lenging fæðingarorlofsins lausnin

Ari Edwald, oddviti Miðflokksins, sagði getuleysi borgarinnar í þessum málaflokki ótrúlegt. Hann segir flokkinn styðja við heimgreiðslur og fjölbreytt rekstrarform fyrirtækjaleikskóla og daggæslu. Þá sagðist hann vilja skoða það að fólk njóti réttinda á borð við það sem það nýtur á meðan það er í fæðingarorlofi, sem Björg nefndi.

„Vilji er allt sem þarf,“ sagði Ari og að það væri engin ein lausn.

Kristinn Jón Ólafsson, oddviti Pírata, sagði þetta fyrstu árin í lífi barnanna og þau væru jafnframt þau mikilvægustu. Það væri þörf á að finna lausnir og að í hans draumaheimi væru leikskólakennarar með bestu launin. Hann sagði þörf á að lengja fæðingarorlofið í 15 til 18 mánuði og að leikskólastigið væri lögfest. Hann sagði einnig þurfa að skapa jákvæða hvata fyrir leikskólakennara, eins og að niðurgreiða nám þeirra, og að gefa þeim svigrúm til að sinna sínu hlutverki á vinnutíma. Þá sagði hann þurfa að efla íslenskukennslu fyrir þau sem ekki eru með íslensku sem fyrsta mál og bæta starfsaðstæður þeirra og kjör. „Þetta er ekki rekstrarvandi, eins og svo margir benda á, þetta er mannauðsvandi,“ sagði Kristinn.

Flokkur fólksins hefur boðið einingahús við leikskóla til að fjölga plássum og Guðmundur Ingi segir að eftir að hafa sinnt trúnaðarstöfum fyrir Eflingu viti hann vel að það er svigrúm til að bæta kjör ófagmenntaðs leikskólastarfsfólks. Flokkur fólksins vilji bæta starfsaðstæður kennara. Hann segir flokkana sem nú eru við völd ekki hafa áhuga á að leysa bráðavandann núna, heldur aðeins til lengri tíma. Flokkur fólksins sé hlynntur vinnustaðaleikskólum og heimgreiðslum á meðan unnið er að bráðavandanum í kerfinu.

Verði að styðja betur við ófaglært starfsfólk

Silja Sóley, oddviti Sósíalistaflokksins, sagðist hafa sterkar skoðanir sem fyrrverandi starfsmaður leikskóla. Það sé þörf á uppbyggingu og viðhaldi en hluti vandans felist í mannauði. Það sé mikið talað um leikskólakennara en minna um ófaglært starfsfólk. Það sé mikil starfsmannavelta og kjör þeirra séu bág. Þau þurfi, sem dæmi, einnig undirbúningstíma því víða séu ekki endilega fagmenntaðir kennarar á deildum til að skipuleggja starfið.

Silja Sóley sagði að lokum mikilvægt að snúa umræðunni og tala meira um lengingu fæðingarorlofsins. Þetta sé viðkvæmt tímabil fyrir ung börn og mikilvægt að þau séu með sínum nánustu. Hún segir flokkinn styðja heimgreiðslur en að það verði að tryggja réttindi fólks.

Stefna flokkanna í leikskólamálum var greind í fréttinni hér að neðan.

#kvennagildra #reykjavík #samfylkingin #vísir


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262884371d/-samfylkingin-i-reykjavik-er-kvennagildra-

📰 Aðrar fréttir

Gæslu­varð­hald fósturföðurins fram­lengt um tvær vikur - Vísir
📅 15.05.2026 👁️ 0
Gæslu­varð­hald fósturföðurins fram­lengt um tvær vikur - Vísir
Grein var frá því í gær að fertugur karlmaður hefði verið handtekinn um helgina á Suðurnesjum, vegna gruns um að hann hefði brotið ítrekað á barni sem...
Skálm­öld hafði betur fyrir dómi - Vísir
📅 15.05.2026 👁️ 0
Skálm­öld hafði betur fyrir dómi - Vísir
Meðlimir Skálmaldar, þeir Baldur Ragnars­son, Gunnar Bene­dikts­son, Snæbjörn Ragnars­son, Björg­vin Sigurðs­son, Jón Geir Jóhanns­son og Þráinn Árni ...
Stefnir í enn ein réttar­höldin gegn Weinstein - Vísir
📅 15.05.2026 👁️ 0
Stefnir í enn ein réttar­höldin gegn Weinstein - Vísir
Weinstein hafði áður verið sakfelldur fyrir að nauðga Mann en þeirri sakfellingu var snúið af áfrýjunardómstól árið 2020. Önnur réttarhöld fóru fram í...
Fyrrverandi deildarstjóri á öryggisgeðdeild fær 800 þúsund frá ríkinu
📅 15.05.2026 👁️ 0
Fyrrverandi deildarstjóri á öryggisgeðdeild fær 800 þúsund frá ríkinu
Landsréttur hefur snúið við dómi héraðsdóms í máli fyrrverandi deildarstjóra öryggis- og réttargeðdeildar Landspítalans og gert embætti landlæknis og ...
Yfir 200 þúsund á hótelum og veitingastöðum í kortafærslum bæjarstjóra Akureyrar
📅 15.05.2026 👁️ 0
Yfir 200 þúsund á hótelum og veitingastöðum í kortafærslum bæjarstjóra Akureyrar
Ásthildur Sturludóttir hefur notað innkaupakort sem hún hefur til umráða sem bæjarstjóri Akureyrarbæjar fyrir rúmlega 200.000 krónur síðan í nóvember....
Sigríður ósátt og segir frumvarp Daða fela í sér of mikil afskipti af launum saksóknara - DV
📅 15.05.2026 👁️ 0
Sigríður ósátt og segir frumvarp Daða fela í sér of mikil afskipti af launum saksóknara - DV
Sigríður Friðjónsdóttir ríkissaksóknari gagnrýnir sum ákvæði í frumvarpi sem Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra hefur lagt fram á Alþingi og segi...
Bottar orðnir virkir í athugasemdum hjá Viðreisn
📅 15.05.2026 👁️ 0
Bottar orðnir virkir í athugasemdum hjá Viðreisn
Undanfarinn sólarhring hafa gerviaðgangar, svokallaðir bottar, látið á sér kræla á Facebook-síðu Viðreisnar. Um er að ræða fjöldann allan af athugasem...
Lyfjastofnun varar við fölsuðum Xanax-hylkjum
📅 15.05.2026 👁️ 0
Lyfjastofnun varar við fölsuðum Xanax-hylkjum
Lyfjastofnun varar við fölsuðum Xanax-hylkjum sem orðið hefur vart við í umferð á Íslandi. Fram kemur í tilkynningu að venjulegt Xanax sé á töfluformi...
Út­strikanir gætu haft á­hrif en þær virka svona - Vísir
📅 15.05.2026 👁️ 0
Út­strikanir gætu haft á­hrif en þær virka svona - Vísir
Þá var það frambjóðandi í öðru sæti á T-lista í Flóahreppi sem ekki fékk sæti í sveitarstjórn eftir að 29,5 prósent kjósenda strikuðu yfir nafn hennar...
Five Italians die during cave scuba dive in Maldives
📅 15.05.2026 👁️ 0
Five Italians die during cave scuba dive in Maldives
Five Italians have died in a scuba diving accident in the Maldives, the foreign ministry in Rome has said."The divers are believed to have died while ...
Nýr ebólufaraldur í Austur-Kongó - Vísir
📅 15.05.2026 👁️ 1
Nýr ebólufaraldur í Austur-Kongó - Vísir
Forsvarsmenn Sóttvarnastofnunar Afríku sendu í dag út yfirlýsingu um faraldurinn en þar kom fram að búið væri að boða embættismenn frá Austur-Kongó og...
Loro Parque ready to rescue French Orcas but awaits approval from Spanish Government
📅 15.05.2026 👁️ 0
Loro Parque ready to rescue French Orcas but awaits approval from Spanish Government
Loro Parque has confirmed it is prepared to assist in the rescue of two orcas currently housed at Marineland in France, but only if the operation rece...
Eleven 'far-right agitators' banned from UK ahead of rally, PM says
📅 15.05.2026 👁️ 2
Eleven 'far-right agitators' banned from UK ahead of rally, PM says
Eleven foreign "far-right agitators" have been blocked from entering the country to attend a rally organised by anti-Islam activist Tommy Robinson, th...
Kosning um sam­einingu sveitar­fé­laganna ó­gild - Vísir
📅 15.05.2026 👁️ 2
Kosning um sam­einingu sveitar­fé­laganna ó­gild - Vísir
Þetta kemur fram í tilkynningu á vef stjórnarráðsins. Þar segir að það sé niðurstaða innviðaráðuneytisins að ágalli hafi verið á framkvæmd íbúakosning...
Skálmöld hafði betur í deilu um útgáfurétt á eftirminnilegum stórtónleikum - DV
📅 15.05.2026 👁️ 0
Skálmöld hafði betur í deilu um útgáfurétt á eftirminnilegum stórtónleikum - DV
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur úrskurðað meðlimum hljómsveitarinnar Skálmaldar í vil í deilu þeirra við útgáfufyrirtækið Öldu Music um útgáfurétt á plö...
Hæstu gjöldin í Garðabæ, skuldirnar í Hafnarfirði og skuldaaukningin á Nesinu
📅 15.05.2026 👁️ 0
Hæstu gjöldin í Garðabæ, skuldirnar í Hafnarfirði og skuldaaukningin á Nesinu
Hæstu gjöldin í Garðabæ, skuldirnar í Hafnarfirði og skuldaaukningin á Nesinu Þeg­ar fjár­mál sveit­ar­fé­lag­anna á höf­uð­borg­ar­svæð­inu eru skoð­...
„Andskotans útlendingahatararnir í Miðflokknum voru mættir!“
📅 15.05.2026 👁️ 0
„Andskotans útlendingahatararnir í Miðflokknum voru mættir!“
„Andskotans útlendingahatararnir í Miðflokknum voru mættir!“ ForsíðaFréttir Tweet Brynjar Karl, þjálfari íþróttafélagsins Aþenu í Efra Breiðholti, hel...
Lewis Waters: Family 'heartbroken' over teen's meningitis death
📅 15.05.2026 👁️ 2
Lewis Waters: Family 'heartbroken' over teen's meningitis death
A teenage boy who died after contracting meningitis has been described as "funny and kind hearted" by his family.Lewis Waters, a sixth-form pupil at T...
Arabískt ofbeldisgengi herjar á Mjóddina – strætóbílstjórar óttaslegnir
📅 15.05.2026 👁️ 0
Arabískt ofbeldisgengi herjar á Mjóddina – strætóbílstjórar óttaslegnir
Arabískt ofbeldisgengi herjar á Mjóddina – strætóbílstjórar óttaslegnir Fréttin15. maí 2026InnlentLeave a Comment Ofbeldisalda hefur viðgengist í Mjód...
Kristrún Frostadóttir: Valið stendur milli harðs hægri meirihluta eða skynsemi út frá miðjunni - DV
📅 15.05.2026 👁️ 0
Kristrún Frostadóttir: Valið stendur milli harðs hægri meirihluta eða skynsemi út frá miðjunni - DV
Samfylkingin vill breytingar en ekki kollsteypur. Í stærsta prófkjöri landsins í Reykjavík í byrjun ársins varð mikil endurnýjun á listanum. Kosningar...
Kosningar um sameiningu á Ströndum ógildar
📅 15.05.2026 👁️ 0
Kosningar um sameiningu á Ströndum ógildar
Innviðaráðuneytið hefur ákveðið að ógilda kosningar um sameiningu Árneshrepps og Kaldrananeshrepps. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef ráðuneytisins...
Hvað skiptir unga kjósendur mestu máli?
📅 15.05.2026 👁️ 1
Hvað skiptir unga kjósendur mestu máli?
Flestir ungir kjósendur nálgast upplýsingar um sveitarstjórnarkosningarnar á samfélagsmiðlum, einna helst á TikTok.Kastljós tók púlsinn á ungum kjósen...
Holidaymakers evacuated after fire at Playa del Inglés hotel
📅 15.05.2026 👁️ 4
Holidaymakers evacuated after fire at Playa del Inglés hotel
Guests at a hotel in Playa del Inglés were forced to evacuate during the early hours of this morning after a fire broke out in the building’s kitchen ...
Holidaymakers evacuated after fire at hotel in Playa del Inglés
📅 15.05.2026 👁️ 1
Holidaymakers evacuated after fire at hotel in Playa del Inglés
Guests at a hotel in Playa del Inglés were forced to evacuate during the early hours of this morning after a fire broke out in the building’s kitchen ...
Rich List: Beckhams become billionaires as Oasis appear for first time
📅 15.05.2026 👁️ 0
Rich List: Beckhams become billionaires as Oasis appear for first time
Sir David Beckham has become the UK's first billionaire sportsman, and Oasis brothers Noel and Liam Gallagher have made it onto the annual Sunday Time...
34,000 people are now on the social housing list in the Canary Islands
📅 15.05.2026 👁️ 2
34,000 people are now on the social housing list in the Canary Islands
Only eight newly built public homes (council houses) were delivered in the Canary Islands in 2025, despite more than 34,000 people currently registere...
„Elsku pabbi, guð varð­veiti þig og blessi“ - Vísir
📅 15.05.2026 👁️ 0
„Elsku pabbi, guð varð­veiti þig og blessi“ - Vísir
„Elsku hjartans vinir. Pabbi minn, hann ákvað að yfirgefa þessa jarðvist núna á miðvikudaginn var. Hann var ekkert að velta fyrir sér hvort það væri e...
What does Makerfield make of by-election and can Burnham win?
📅 15.05.2026 👁️ 1
What does Makerfield make of by-election and can Burnham win?
The residents of Makerfield are about to find themselves at the epicentre of the political universe as a by-election battle that could decide the next...
Golf­klúbbarnir í óða­önn við að út­búa sér­staka fé­lags­aðild - Vísir
📅 15.05.2026 👁️ 0
Golf­klúbbarnir í óða­önn við að út­búa sér­staka fé­lags­aðild - Vísir
„Golfklúbbum er því eins og öðrum íþróttafélögum óheimilt að synja einstaklingi um aðild að félagi á þeirri forsendu einni að ekki sé rými til staðar ...
What next for Starmer? Five scenarios in Labour leadership crisis
📅 15.05.2026 👁️ 3
What next for Starmer? Five scenarios in Labour leadership crisis
Resignations and a revolt by some MPs this week have challenged Prime Minister Sir Keir Starmer's grip on power but there is still no clear resolution...
Fögnuðu aldarafmæli Ísaksskóla
📅 15.05.2026 👁️ 2
Fögnuðu aldarafmæli Ísaksskóla
Nemendur, kennarar, foreldrar og aðstandendur komu saman í Ísaksskóla í dag þar sem blásið var til veislu vegna 100 ára afmælis skólans.Fögnuðurinn hó...
Segir embætti landlæknis hafa hótað að svipta hana starfsleyfi – „Tilraun til að skapa ótta“ - DV
📅 15.05.2026 👁️ 0
Segir embætti landlæknis hafa hótað að svipta hana starfsleyfi – „Tilraun til að skapa ótta“ - DV
Steinunn Erla Thorlacius, framkvæmdastjóri Intuens, segir embætti landlæknis hafa hótað að svipta hana starfsleyfi vegna starfsemi fyrirtækisins. Þett...
Jennifer sér eftir klippingunni sem tryllti aðdáendur - DV
📅 15.05.2026 👁️ 0
Jennifer sér eftir klippingunni sem tryllti aðdáendur - DV
Leikkonan Jennifer Aniston vakti mikla athygli í sjónvarpsþáttunum Friends og voru margir áhorfendur sem dásömuðu hár hennar og mættu með mynd í klipp...
Feneyjatvíæringur í óþægilegum skugga alþjóðapólitíkur
📅 15.05.2026 👁️ 2
Feneyjatvíæringur í óþægilegum skugga alþjóðapólitíkur
Feneyjatvíæringurinn er nú haldinn í 61. sinn. Hátíðin er tvískipt. Annars vegar eru þjóðarskálar, 96 talsins, þar sem ríki kynna listamenn sína og hi...
Trump um Xi og Taí­van: „Hann vill ekki sjá bar­áttu um sjálf­stæði“ - Vísir
📅 15.05.2026 👁️ 2
Trump um Xi og Taí­van: „Hann vill ekki sjá bar­áttu um sjálf­stæði“ - Vísir
„Ég mun taka ákvörðun. En, þú veist, það síðasta sem við þurfum núna er stríð í fimmtán þúsund kílómetra fjarlægð,“ sagði Trump um vopnasöluna þegar h...
Selalaug og til­mæli um barna­af­mæli gælu­verk­efni sem mætti slaufa - Vísir
📅 15.05.2026 👁️ 0
Selalaug og til­mæli um barna­af­mæli gælu­verk­efni sem mætti slaufa - Vísir
Silja Sóley Birgisdóttir, oddviti Sósíalistaflokksins, byrjaði á því að spyrja Hildi Björnsdóttur, oddvita Sjálfstæðisflokksins, um kaup á Félagsbústö...
Trump says he 'made no commitment either way' on Taiwan at China talks
📅 15.05.2026 👁️ 3
Trump says he 'made no commitment either way' on Taiwan at China talks
US President Donald Trump has said he has "made no commitment either way" on Taiwan during talks with China's President Xi Jinping.On the flight back ...
Undirrita viljayfirlýsingar um íbúðauppbyggingu í Reykjavík
📅 15.05.2026 👁️ 2
Undirrita viljayfirlýsingar um íbúðauppbyggingu í Reykjavík
Tvær viljayfirlýsingar um uppbyggingu íbúðarhúsnæðis í Reykjavík á næstu árum voru undirritaðar í dag. Önnur var gerð við Bjarg íbúðafélag en hin við ...
Hafa brotið gegn vopnahlé og hertekið meira af Gasasvæðinu
📅 15.05.2026 👁️ 0
Hafa brotið gegn vopnahlé og hertekið meira af Gasasvæðinu
Hafa brotið gegn vopnahlé og hertekið meira af Gasasvæðinu Ísra­els­menn hafa hald­ið áfram að taka yf­ir land á Gasa­svæð­inu í and­stöðu við ákvæði ...
Sigfríð Ingólfs­dóttir er látin - Vísir
📅 15.05.2026 👁️ 0
Sigfríð Ingólfs­dóttir er látin - Vísir
Bæjarmiðillinn Akureyri.net greindi frá andláti Sigfríðar. Sigfríð fæddist 7. júní árið 1952 á Akureyri. Foreldrar hennar voru Unnur Kristjana Sigtryg...
Pizzutilboð og annað smáræði í kortafærslum bæjarstjóra
📅 15.05.2026 👁️ 0
Pizzutilboð og annað smáræði í kortafærslum bæjarstjóra
Fæstir bæjarstjórar í stærstu sveitarstjórnum landsins hafa til umráða innkaupakort starfs síns vegna líkt og borgarstjóri Reykjavíkur. Þeir sem það h...
Pizzutilboð og annað smáræði í færslum bæjarstjóra
📅 15.05.2026 👁️ 0
Pizzutilboð og annað smáræði í færslum bæjarstjóra
Fæstir bæjarstjórar í stærstu sveitarstjórnum landsins hafa til umráða innkaupakort starfs síns vegna líkt og borgarstjóri Reykjavíkur. Þeir sem það h...
Varasamur vindur á Suðurlandi á morgun
📅 15.05.2026 👁️ 0
Varasamur vindur á Suðurlandi á morgun
Veðurfræðingur Vegagerðarinnar varar við akstursskilyrðum við Reynisfjall og undir Eyjafjöllum fyrri hluta dags á morgun. Frá því um klukkan 6 til klu...
Ragna tekin við sem fangelsismálastjóri
📅 15.05.2026 👁️ 0
Ragna tekin við sem fangelsismálastjóri
Ragna Bjarnadóttir tók í dag við embætti forstjóra Fangelsismálastofnunar ríkisins. Hún er fyrsta konan til að vera skipuð forstjóri Fangelsismálastof...
Rósa fékk áfall þegar hún las utan á umbúðirnar - „Mér leið í tvo daga eins og rúta hafi keyrt á mig“ - DV
📅 15.05.2026 👁️ 0
Rósa fékk áfall þegar hún las utan á umbúðirnar - „Mér leið í tvo daga eins og rúta hafi keyrt á mig“ - DV
Tölvuleikjaspilarinn og streymarinn Rósa Björk sem þekkt er sem „Goonhunter“ varar við nikótínpúðum í myndbandi sem hún birti á TikTok í vikunni. „Sto...
Án þéttingarstefnunnar væru „7.000 aukabílar í Ártúnsbrekkunni“
📅 15.05.2026 👁️ 0
Án þéttingarstefnunnar væru „7.000 aukabílar í Ártúnsbrekkunni“
Án þéttingarstefnunnar væru „7.000 aukabílar í Ártúnsbrekkunni“ Björg Magnús­dótt­ir, odd­viti Við­reisn­ar, sagði ungt fólk ekki hafa efni á að búa í...
Renting a Car in the Canary Islands: What every tourist gets wrong (and how to avoid it)
📅 15.05.2026 👁️ 0
Renting a Car in the Canary Islands: What every tourist gets wrong (and how to avoid it)
If your task was to find a perfect spot for a road trip, the Canary Islands must be it. From the cloud forests of La Gomera to the volcanic lunar land...
„Réttum megin sögunnar“ að sniðganga Eurovision
📅 15.05.2026 👁️ 2
„Réttum megin sögunnar“ að sniðganga Eurovision
„Réttum megin sögunnar“ að sniðganga Eurovision „Þögn­in ekki val­kost­ur,“ seg­ir Pedro Sanchez, for­sæt­is­ráð­herra Spán­ar. Sniðganga Spánar á Eur...
James Bond hefur áhyggjur af fjölbreytileikastefnu illmenna
📅 15.05.2026 👁️ 0
James Bond hefur áhyggjur af fjölbreytileikastefnu illmenna
James Bond hefur áhyggjur af fjölbreytileikastefnu illmenna ÁhugavertÍ fókus Tweet James Bond glímir við óvini fjölbreytileikans í bókinni Kafli úr Ja...
Kex innkallað af heilbrigðiseftirliti
📅 15.05.2026 👁️ 2
Kex innkallað af heilbrigðiseftirliti
Kex innkallað af heilbrigðiseftirliti Mynd: Víkingur Matvælastofnun varar við neyslu á Sky flakes snack pack frá filipeysku vörumerkinu MY San sem Fis...