Leikkonan Jennifer Aniston vakti mikla athygli í sjónvarpsþáttunum Friends og voru margir áhorfendur sem dásömuðu hár hennar og mættu með mynd í klippingu og vildu nákvæmlega eins útlit.
„Hugsaðu þig um áður en þú færð þér topp,“ skrifaði 57 ára gamla leikkonan á Instagram á fimmtudaginn og deildi röð mynda af sér úr kvikmyndum eins og Horrible Bosses, Marley & Me, Rock Star auk Friends.
Aniston birti einnig teiknimynd úr New Yorker þar sem skjaldbaka segir: „Það tók hundrað ár en loksins lét ég hárið á mér vaxa.“
Þótt hún eigi kannski erfitt með fyrri klippingar sínar, þá hefur Aniston byggt upp veldi í kringum hár sitt og setti hún Lolavie-vörulínuna á markað árið 2021.
Frægir vinir og aðdáendur Aniston eru margir ósammála henni.
„Þú barst hana best,“ sagði leikkonan Sandra Bullock. Dax Shepard bætti við: „Hárið: Hættulegasti leikurinn.“ Og Rita Wilson skrifaði: „Hún er með hárið. Hún er með hárið.“
Margir sögðu að færsla Aniston hefði öfug áhrif við það sem hún ætlaði sér, og að hún væri hvatning til fólks um að klippa sig sjálf.
„Stelpa, ég held að þú skiljir ekki hvað þú ert að gera … Þessar færslur munu sannfæra fólk um að fá sér topp því þú lítur alltaf svo vel út,“ sagði einn aðdáandi. „Hárið á Jen hefur sett ómögulega staðla í áratugi og einhvern veginn heldur það áfram að vinna,“ sagði annar.
Hárlitari Aniston, Michael Canalé, sagði frá uppruna The Rachel-klippingarinnar við Page Six Style árið 2019 og lýsti þar frábæru útliti hennar í gegnum árin.
„Þó að flestir aðrir frægir einstaklingar hafi prófað sítt og stutt og mjög mismunandi liti, hefur Jennifer orðið tískutákn því hún er ekki tískuleg,“ sagði Canalé.