Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, greinir frá andláti föður síns, í einlægu myndbandi á samfélagsmiðlum.
„Pabbi minn, hann ákvað að yfirgefa þessa jarðvist á miðvikudaginn var. Hann var ekkert að velta fyrir sér hvort það væri einhver kosningabarátta eða eitthvað. Hann var sæll að fá að fara og ég er búin að vera hérna hjá honum og er að hugsa um að koma ekki aftur til Reykjavíkur fyrr en þessum áfanga hefur verið lokið.“
Faðir Ingu, Ástvaldur Einar Steinsson, sómaður og netagerðarmaður, var 95 ára, fæddur 21. ágúst 1930.
„Hér vildi hann vera og hvergi annars staðar. Og fyrir hann vil ég segja þetta:
Í kyrrð og fegurð fjalla á ég heima
Þar finnst mér sál mín öðlast djúpan frið
Og hvergi er betra amstri öllu að gleyma
né efla tengsl við æðri mátta svið.
Elsku pabbi, guð varðveiti þig og blessi, takk fyrir allt og allt. Ég veit það eru margir í sumarlandinu sem hafa tekið þér opnum örmum.“