Kafli úr James Bond sögu hefur vakið mikla kátínu víða á samfélagsmiðlum síðustu daga eftir að lesendur tóku eftir því að Bond virðist hafa miklar áhyggjur af skorti á fjölbreytileika í óþokkahóp nýjasta andstæðings síns, Æthelstan af Wessex, en honum er lýst sem öfgafullum þjóðernissinna.
Ný tegund af illmenni
Æthelstan er ekki að reyna að klippa Bond í tvennt með leiserbyssu eða henda honum í laug fulla af hungruðum hákörlum, heldur er það skortur á fjölbreytileika sem gerir Bond svo hneykslaðan.
Hér má lesa er Bond fer í veislu sem haldin er af einum af skósveinum Æthelstan:
„Birkett var fyrrverandi þingmaður Íhaldsflokksins, þekktur fyrir að ýta undir samsæriskenningar um Covid, bóluefni, grímuskyldu og 5G, sem höfðu síðan auðvitað þróast yfir í hefðbundna andstöðu við innflytjendur, ESB, BBC, meginstraumsfjölmiðla, menningarlegan marxísma og afneitun loftslagsbreytinga.
Þetta hafði svo þróast yfir í transfóbískan málflutning sem endaði með því að honum var sparkað úr flokknum og skömmu síðar stofnaði hann Nýja Frelsisflokkinn.
„Bond tók eftir svolitlu. Það var langt síðan hann hafði verið á samkomu þar sem næstum eingöngu karlmenn voru samankomnir. Það var einkennileg tilfinning. Hér þóttust menn ekki einu sinni fagna fjölbreytileikanum. Æthelstan hafði ekki minnstu áhyggjur af því að tryggja að helmingur fólksins sem hann hafði ráðið til að framkvæma valdaránið væru konur, fólk af öðrum kynþáttum eða fatlaðir. Þetta var óafsakanlega gamaldags samkoma. Í heimi Æthelstans var hann konungur og gat gert hvað sem hann vildi.“

Textinn er úr smásögunni On His Majesty’s Secret Service eftir breska rithöfundinn Charlie Higson sem kom út árið 2023 í tilefni af krýningu Karls III Bretakonungs. Þrátt fyrir að sagan sé ekki glæný og ekki mikið lesin hefur skjáskot af umræddum kafla nú farið í dreifingu á netinu og vakið mikla kátínu.
Í kaflanum fylgist Bond með hópi álhatta og tekur eftir því að samkoman er nánast eingöngu skipuð hvítum körlum. Hann veltir því meðal annars fyrir sér að þar sé „ekki einu sinni verið að þykjast fagna fjölbreytileika“ og að leiðtogi hópsins hafi ekki haft neinar áhyggjur af því að tryggja að hluti þátttakenda væru konur, fólk af öðrum kynþáttum eða fatlaðir.
Margir Bond aðdáendur segja textann hljóma meira eins og kaldhæðna Twitter færslu en James Bond en bókin er þó hluti af opinberum heimi James Bond, eða „canon“.
Fyrir áhugasama er hægt að kaupa bókina á netinu.