Nemendur, kennarar, foreldrar og aðstandendur komu saman í Ísaksskóla í dag þar sem blásið var til veislu vegna 100 ára afmælis skólans.
Fögnuðurinn hófst með samsöng á sal en að söngnum loknum gafst gestum færi á að líta á ýmis verkefni sem nemendur hafa unnið að undanförnu. Þemu vikunnar voru: Gamli Ísaksskóli, núverandi Ísaksskóli og framtíðar Ísaksskóli.
Í mars undirrituðu Páll Harðarson, stjórnarformaður Ísaksskóla, og Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri í Kópavogi, hafa viljayfirlýsingu um að Ísaksskóli taki að sér rekstur nýs skóla í Vatnsendahvarfi fyrir leikskólabörn og nemendur í fyrsta til fjórða bekk grunnskóla.
Nýi skólinn verður rekinn samhliða skólanum í Bólstaðarhlíð í Reykjavík sem starfar áfram í óbreyttri mynd. Þar verða engin skólagjöld innheimt.