Fæstir bæjarstjórar í stærstu sveitarstjórnum landsins hafa til umráða innkaupakort starfs síns vegna líkt og borgarstjóri Reykjavíkur. Þeir sem það hafa virðast hafa notað það sparlega á liðnu kjörtímabili, samkvæmt svörum sveitarstjórna við fyrirspurnum fréttastofu.
Kortanotkun Heiðu Bjargar Hilmisdóttur borgarstjóra hefur verið mikið til umfjöllunar að undanförnu. Hún notaði kortið fyrir 753 þúsund krónur, meira en forverar hennar á kjörtímabilinu, og starfsfólk á skrifstofu borgarstjóra og borgarritara gerði 23 skriflegar athugasemdir við færslurnar.
Bæjarstjórar Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs og Árborgar hafa ekki innkaupakort en í svari frá Hafnarfjarðarbæ segir að bæjarstjóri geti fengið endurgreiddan útlagðan kostnað líkt og aðrir starfsmenn bæjarins.
Tíu þriðjudagstilboð, brauðstangir og gos
Valdimar Víðisson bæjarstjóri Hafnarfjarðar hefur í eitt sinn fengið slíka endurgreiðslu á kjörtímabilinu. Endurgreiðslan nam 28.650 krónum fyrir tíu þriðjudagstilboð, brauðstangir og gos á Pizzunni á Strandgötu fyrir fyrsta fund ungmennaráðs Hafnarfjarðar í janúar.
Bæjarstjóri Mosfellsbæjar hefur innkaupakort til umráða en gert er ráð fyrir því að það sé ekki notað nema þegar ekki sé hægt að nota hefðbundin reikningsviðskipti.
Í svari Mosfellsbæjar segir að sömu reglur og viðmið gildi fyrir alla starfsmenn sem eru með innkaupakort. Ekki liggur fyrir hve margir þeir eru.
Þóra M. Hjaltested bæjarstjóri Mosfellsbæjar og Regína Ástvaldsdóttir fyrrverandi bæjarstjóri hafa notað slík kort samanlagt fjórum sinnum á kjörtímabilinu. Engar athugasemdir voru gerðar við kortanotkun bæjarstjóra.
Á viðskiptakorti Regínu var ein færsla upp á 2.900 króna fundargjald Sambands íslenskra sveitarfélaga í maí 2024.
Þóra hefur verið bæjarstjóri frá 1. apríl og á hennar viðskiptakorti eru þrjár færslur. Í svari frá Mosfellsbæ segir að færslurnar tengist ekki verkefnum bæjarstjóra heldur hlutverki hennar sem bæjarlögmanns.
Tvær færslur eru frá 5. maí og hljóða upp á samanlagt 34.980 krónur hjá Krónunni Snjallverslun vegna matvæla fyrir bæjarstjórafundi. Sama skýring er gefin á þriðju færslunni, frá 7. maí, þar sem keypt var fyrir 12.905 krónur í Hagkaup.
Svör frá Akureyri og Reykjanesbæ bárust ekki fyrir birtingu fréttarinnar.