Áætlanir Reykjavíkurborgar um að breyta Ingólfstorgi í markaðstorg í sumar falla í grýttan jarðveg hjá hjólabrettaiðkendum. Reykjavíkurborg birti myndskeið á samfélagsmiðlum sínum í gær þar sem auglýst var eftir fólki sem hefur áhuga á að vera með sölubás á sumarmarkaði á Ingólfstorgi og í Austurstræti. Markaðurinn verður opinn frá 20. maí og fram á haust.
Hjólabrettaiðkendur eru ósáttir við áætlanir borgarinnar enda hefur Ingólfstorg verið miðpunktur hjólabrettaiðkunar í Reykjavík í yfir 30 ár. Hjólabrettasenan hefur mótmælt þessu kröftuglega í athugasemdum á samfélagsmiðlum Reykjavíkurborgar.
Réttast væri að bæta við íþróttina frekar en skerða
Inga Hrafni Guðmundssyni, hjólabrettakappa og læknanema, finnst sumarmarkaðurinn vera flott framtak hjá borginni. Honum finnst þó að það ætti að reisa hann annars staðar en á Ingólfstorgi, sem er miðstöð hjólabrettamenningar í Reykjavík.
Verið sé að þrengja að íþrótt sem þegar hafi mjög takmarkaða aðstöðu í borginni. Réttast væri að bæta við hana frekar en skerða. Yfir hundrað manns á öllum aldri komi reglulega á Ingólfstorg á hjólabretti.
Ingi segir að frábært væri að setja aftur upp kanta sem hannaðir voru fyrir hjólabrettaiðkendur á Ingólfstorgi í fyrra en hafa verið teknir niður.
„Í draumaheimi þá ætti náttúrulega að vera steinsteypt hjólabrettapark einhvers staðar í Reykjavík eins og í Köben og Osló og alls staðar á Norðurlöndunum. Þar er aðstaðan svo miklu betri en hérna á Íslandi.“
Fólk vill koma á „Ingó“
Að sögn Inga sé það ákveðið lýðheilsusjónarmið að fólk geti komið og stundað sína íþrótt utandyra og á eigin forsendum.
„Svo er líka fullt af ungu fólki sem passar ekkert alveg inn í þessar hefðbundnu íþróttir eða tómstundir og vill bara koma hingað á „Ingó“ og stunda þetta alveg gjaldfrjálst. Það kostar ekkert að koma hingað á Ingólfstorg.“
Samkvæmt upplýsingum frá Reykjavíkurborg hafa viðbrögð við áformunum orðið til þess að verið sé að skoða aðrar útfærslur á markaðnum.