Ný bygging Bíldudalsskóla var vígð við hátíðlega athöfn í dag en þar verður bæði leik- og grunnskólastarf á Bíldudal undir einu þaki. Opið hús var í skólanum þar sem gestum bauðst að fá leiðsögn um nýju bygginguna og ávörp og tónlistaratriði voru flutt við tilefnið.
Loka þurfti gömlu skólabyggingu Bíldudals fyrir um þremur árum vegna myglu. Fyrir vikið þurfti að flytja skólastarfið í önnur hús í bænum, svo sem Skrímslasetrið, Muggstofu og sóknarheimilið Gamla skólann en tæplega þrjátíu börn eru á leik- og grunnskólaaldri á Bíldudal.
Lilja Rut Rúnarsdóttir, skólastjóri Bíldudalsskóla, segir húsavandann búinn að hafa margvísleg áhrif á bæinn.
„Þetta er auðvitað ekki ákjósanlegur kostur, að kenna svona inni í Skrímslasetrinu og á Muggstofu og þetta hefur auðvitað haft áhrif á fleiri en okkur. Félagsstarf eldri borgara hefur þurft að fara út af því við höfum þurft að taka yfir þá byggingu líka. Við höfum reynt að gera mjög vel út úr þessu og allir bara lögðust á eitt að láta þetta bara ganga upp.“
Skólastarf hefst í nýjum Bíldudalsskóla í haust.
„Byggingin er náttúrulega hin glæsilegasta. Ég ætla að leyfa mér að bara fullyrða að hún er með glæsilegasta útsýnið, þar sem við horfum bara út á hafið og beint yfir á fjallið.“
Þá segir Lilja Rut mjög ánægjulegt að leik- og grunnskólastarf sé að færast á sama stað.
„Við vitum það náttúrulega að umhverfi og skipulag skiptir miklu máli. Þessar aðstæður sem eru þarna núna styðja alveg við leik og forvitni, sköpun og markvisst nám,“ segir skólastjórinn.
„Ég held að þetta eigi eftir að koma mjög vel út. Við erum ofboðslega stolt af þessu og getum ekki beðið eftir að hefja kennslu þarna.“