Ungir Ísraelar fagna innlimun: „Megi þorp ykkar brenna“
Palestínumenn í Austur-Jerúsalem læstu sig inni á meðan herskáir Ísraelar fögnuðu afmæli innlimunar borgarhlutans með skemmdarverkum og ógnandi slagorðum undir lögregluvernd.
Ísraelskir þjóðernissinnar þustu um þröngar götur gömlu borgarinnar í Jerúsalem í dag og sungu „Dauði fyrir Araba“ og „Megi þorp ykkar brenna“ í árlegri göngu sinni, á meðan margir palestínskir íbúar héldu sig innandyra.
Á hverju ári ganga tugþúsundir Ísraela, margir þeirra unglingar og ungt fólk, fylktu liði um Jerúsalem til að fagna því sem ísraelsk yfirvöld kalla „sameiningu“ Jerúsalem eftir að Ísrael hertók og innlimaði Austur-Jerúsalem í stríði Ísraels og Araba árið 1967.
Sameinuðu þjóðirnar viðurkenna ekki innlimun Austur-Jerúsalem, þar sem meirihluti íbúa er palestínskur.
Í gegnum árin hefur árlega gangan ítrekað endað með ofbeldi, þar sem hópar ungra öfgaþjóðernissinna hafa beint kynþáttafordómum, hótunum og árásum að Palestínumönnum.
Gangan í ár fer fram í skugga stríðsins við Íran og vopnahlés á Gaza, sem er brotið nær daglega.
Mustafa, palestínskur íbúi við Via Dolorosa í gömlu borginni, sagði að ungir öfgaþjóðernissinnar frá Ísrael hefðu brotist inn í garðinn við heimili hans, brotið gler og sungið „Dauði fyrir Araba“.
„Þetta er svartur dagur ... Ég var inni í húsinu þegar um 20 landnemar komu inn, þeir brutu hurðirnar,“ sagði hann við AFP.
„Ef þú ýtir við þeim ferðu í fangelsi ... þú getur ekkert gert.“
Ísraelski fréttamiðillinn Haaretz greinir frá því að göngumennirnir hafi ráðist að fólki og áreitt blaðamenn, en lögreglumenn hafi einfaldlega fjarlægt blaðamennina og leyft hópnum að halda áfram athæfi sínu.
„Verra með hverju ári“
Þúsundir gengu eftir aðalgötunum fyrir utan gömlu borgina, þar á meðal unglingar sveipaðir ísraelskum fánum og foreldrar með ungbörn í fanginu.
„Þetta er óvenjulegt andrúmsloft,“ sagði Isabelle, 59 ára, sem ók í tvo og hálfan tíma til að horfa á hafið af bláum og hvítum fánum.
Reuven, 37 ára, sem var þar með ungum syni sínum, sagði: „Kristnir og múslimar geta verið hér, en þessi borg, ein sameinuð borg, tilheyrir gyðingum.“
Þjóðaröryggisráðherra Ísraels, Itamar Ben Gvir, sem er lengst til hægri í stjórnmálum, hélt upp á daginn með því að heimsækja hið viðkvæma Al-Aqsa moskusvæði, þriðja helgasta stað íslams.
Staðurinn er þekktur meðal gyðinga sem Musterishæðin og er einnig helgasti staður gyðingdómsins.
„Fimmtíu og níu árum eftir frelsun Jerúsalem dró ég ísraelska fánann að húni á Musterishæðinni og við getum sagt með stolti: við höfum endurheimt yfirráð yfir Musterishæðinni,“ sagði Ben Gvir á Telegram.
Fréttaritari AFP sá Ben Gvir, umkringdan lífvörðum, ganga með mannfjöldanum og stilla sér upp fyrir myndatökur.
Flestir palestínskir verslunareigendur í gömlu borginni höfðu dregið niður málmhlera sína og yfirgefið húsasundin.
Örfáar verslanir voru opnar undir vernd aðgerðasinna úr grasrótarhreyfingunni Standing Together, sem er samstarfsverkefni Ísraela og Palestínumanna, en þeir dreifðu sér um gömlu borgina til að vernda palestínska íbúa og fyrirtæki fyrir áreitni og árásum.
Myndbönd á samfélagsmiðlum sýndu aðgerðasinnum ýtt og þeir umkringdir af ungmennum í eins stuttermabolum með slagorðum tengdum Jerúsalem.
Í einu myndbandi köstuðu ungmennin plaststólum í palestínskan verslunareiganda á meðan þau sungu „Arabískir hórkarlar“.
Verslunareigandinn virtist kasta einum stól til baka áður en hann lyfti priki til viðvörunar.
„Ástandið versnar með hverju ári,“ sagði einn palestínskur verslunareigandi við AFP, en neitaði að gefa upp nafn sitt af ótta við hefndaraðgerðir.

Ungir landtökumenn í hópnum
Mannfjöldinn söng „Dauði fyrir Araba“ og „Megi þorp ykkar brenna“ undir eftirliti ísraelsku lögreglunnar sem var á svæðinu, að sögn fréttaritara AFP og samkvæmt myndefni á netinu.
Sumir klöppuðu taktfast, á meðan aðrir börðu á málmhlera lokaðra palestínskra verslana.
Yfirvöld skipa stundum palestínskum verslunum í gömlu borginni að loka fyrir gönguna, sem endar við Grátmúrinn – síðustu leifar musterisins sem Rómverjar eyddu árið 70 e.Kr., helgasta staðinn þar sem gyðingar mega biðja.
Í mannfjöldanum voru nokkrir meðlimir úr harðlínu landnemahreyfingu sem kallast Hilltop Youths, en hún hefur verið tengd við nær daglega árásir á Palestínumenn á hernumda Vesturbakkanum.
„Þeir eiga ekki heima hér,“ sagði einn þeirra, en neitaði að gefa upp nafn sitt.
Göngufólk réðst einnig að blaðamönnum, ýtti við þeim og hindraði þá í að taka upp myndefni.
Fyrr um daginn höfðu tugir ísraelskra friðarsinna gefið vegfarendum blóm.
„Það var mikilvægt fyrir mig að koma til að sýna samstöðu með nærsamfélaginu og segja að sem gyðingur, sem zíonisti, sem einhver sem vill gyðingaríki hér, vil ég að þeir séu hluti af því og hluti af þjóðinni með jöfnum réttindum,“ sagði Ilan Perez, 52 ára, tæknimaður frá Raanana, nálægt Tel Aviv.