Matvælastofnun er með til skoðunar hvers vegna dauðastríð langreyðar í síðasta mánuði tók meira en hálftíma eftir að hún hafði verið skotin. Yfirdýralæknir gerir ráð fyrir niðurstöðum í næstu viku.
Dauðastríð sem varði 31 mínútu
Hvalur 8 veiddi langreyðina þann 22. júní og var hún skotin með fjórum sprengiskutlum, samkvæmt eftirlitsskýrslu stofnunarinnar. Í öðru skoti sprakk sprengiskutullinn ekki. Áætlaður tími frá fyrsta skoti og þar til dýrið drapst var 31 mínúta.
Í skriflegu svari við fyrirspurn fréttastofu segir Þóra Jóhanna Jónasdóttir, yfirdýralæknir hjá MAST, að þetta sé óvenjulega langt dauðastríð. Slíkt sé alltaf litið alvarlegum augum. Samkvæmt reglugerð um veiðar á langreyðum sé markmiðið að dýrin drepist samstundis. Öll tilvik þar sem hvalur drepst ekki samstundis eða er skotinn oftar en einu sinni eru skráð sem frávik og þau rannsökuð.
Matvælastofnun fer nú yfir framkvæmd veiðanna með eftirlitsmanni sem var um borð og aflar gagna frá Hval hf. Gert er ráð fyrir að niðurstöður liggi fyrir í næstu viku.
Þrjár af tíu skotnar oftar en einu sinni
Af þeim tíu langreyðum sem hafa verið veiddar á þessu tímabili eru þrjár sem hafa verið skotnar oftar en einu sinni. Tvær voru skotnar tvisvar og var áætlaður tími dauða 6 og 7 mínútur. Þau frávik eru einnig til skoðunar hjá stofnuninni.
Haustið 2023 stöðvaði MAST tímabundið veiðar á Hval 8 vegna brots á lögum um velferð dýra. Langreyður var skotin utan tilgreinds marksvæðis og drapst ekki strax. Hálftíma eftir fyrsta skot var hún skotin aftur og drapst nokkrum mínútum eftir það.
Þóra segir ástæður fyrir löngu dauðastríði þá og nú ekki þær sömu. Að svo komnu máli sé ekki hægt að segja til um hvort tilvikið nú sé brot á dýraverndarlögum. Veiðar verði stöðvaðar ef rannsókn leiðir í ljós að Hvalur hf. hafi ekki uppfyllt allar skyldur sínar við framkvæmd veiðanna.
Ýmis náttúru- og dýraverndarsamtök hafa sent frá sér yfirlýsingu og krefjast þess að veiðarnar verði stöðvaðar og að Hvalur hf. verði sviptur veiðileyfi.
Hvalveiðiskipin enn við bryggju
Vegna slæmra veðurskilyrða á miðum úti liggja hvalveiðiskipin Hvalur 8 og Hvalur 9 við bryggju í Hvalfirði. Landhelgisgæslan fylgist með Bandero, skipi aðgerðasinna Paul Watson-samtakanna, bæði úr lofti og á sjó á vestanverðu landinu, en skipið hefur ekki komist í nálægð við hvalveiðiskipin.
Kristján Loftsson, forstjóri Hvals hf., hefur ekki svarað beiðni fréttastofu um viðtal þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir.