Upphafsfundur hreyfingarinnar Áfram Ísland verður haldinn í Sjálfstæðissalnum við Austurvöll á mánudaginn 6. júlí. Hreyfingin er vettvangur fólks sem telur hagsmunum Íslands best borgið utan ESB.
„Áfram Ísland er hreyfing fólks með fjölbreyttan bakgrunn og frá ólíkum sviðum íslensks þjóðfélags. Samnefnarinn er að íslenska þjóðin sé fullfær um að sækja fram um leið og hún tekst á við áskoranir sem við blasa hverju sinni. Stór hluti þjóðarinnar telur að Ísland sé land tækifæranna og að hagsmunum Íslands sé best borgið utan ESB,“ segir í tilkynningu.
Allir nei-sinnar rúmast innan hreyfingarinnar
Halldór Benjamín Þorbergsson er einn aðstandenda hreyfingarinnar og verður fundarstjóri á mánudag. Hann segir Áfram Ísland ekki kljúfa sig frá öðrum nei-sinnum á borð við Heimssýn.
„Bara þvert á móti, allir þessir aðilar rúmast innan okkar vébanda og eru velkomnir enda er þetta bara fjöldahreyfing sem er sprottin upp úr grasrót íslensks samfélags hringinn í kringum landið,“ segir Halldór aðspurður.
Þvert á stéttir og stjórnmálaflokka
Hann segir hreyfinguna vettvang fólks þvert á landshluta, stéttir og stjórnmálaflokka til að sameinast um þetta baráttumál. Hann hafi skynjað góðar undirtektir á ferðum sínum um landið að undanförnu.
„Við höfum mikla trú á framtíð Íslands og íslensku samfélagi og teljum mikilvægt að barátta sem þessi sé háð á jákvæðum, uppbyggilegum og málefnalegum nótum.“
Ólafur Ragnar Grímsson fyrrverandi forseti Íslands, Björn Zoëga, læknir og Lára Herborg Ólafsdóttir, lögmaður og sérfræðingur í tæknirétti verða ræðumenn á fundinum. Þar verða fleiri aðstandendur Áfram Ísland kynntir en nöfn þeirra sem skrá sig til liðs við hreyfinguna verður einnig hægt að finna á vef Áfram Ísland.