Varptíma er að ljúka og æðarbændur víða um land að klára síðustu handtökin í dúntekju.
Mismunandi áherslur eru á helstu verkefni eftir hverjum hluta varptímans. Í byrjun þarf að líta eftir minkaslóðum og kortleggja ferðir refa í nágrenni ásamt því að undirbúa varpið.
„Ég set mikið af heyi í hreiðrin og endurnýja hús og skjól og svona,“ segir Helgi Þorsteinsson, æðarbóndi í æðarvarpinu að Ytra-Nýpi við Vopnafjörð.
„Síðan færist áherslan á flugvarginn“ máfinn og hrafninn, seinna um tímann. Á síðustu vikunum tekur dúntekjan sjálf við en Helgi segist akkúrat vera að koma dúninum í hús í dag. „Ég er búinn að ná úr einhverjum 2500 hreiðrum og er bara bjartsýnn á framhaldið.”
Þegar dúnninn er kominn í hús þarf að hreinsa hann. Helgi segir það vera mikið verk sem megi bíða með haustinu. Þegar hreinsun sé lokið taki við að búa til sængur og kodda og reyna að selja afraksturinn.
Helgi segir dúntekjuna hafa verið þokkalega í ár og varpið á pari við í fyrrasumar. Það sem ráði því hvernig dúntekjan verði er að sögn Helga „líklega duttlungar náttúrunnar“.
„Við uppskerum bara úr henni og það er kannski bara ástand sjávar og bara ýmislegt, en þetta er dálítið öðruvísi landbúnaður heldur en annað. Við tökum bara því sem við fáum.“