Náttúruverndarstofnun óskaði eftir við sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps að fá leyfi til að stækka bílastæði við Háafoss.
Um er að ræða 450-500 fermetra stækkun sem kemur sem samtengd viðbót við núverandi stæði og í samræmi við gildandi deiliskipulag við Háafoss. Stækkunin er til að bregðast við auknum fjölda ferðamanna að Háafossi, en í júní voru á milli 300 til 400 manns sem komu að Háafossi á hverjum degi og núverandi bílastæði eru of lítil miðað við þann fjölda.
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkti á fundi sínum í dag með fimm atkvæðum framkvæmdaleyfi til stækkunar bílastæðis við Háafoss.