„Það var tilkynnt um mann með skotvopn, sem reyndist vera leikfangabyssa,“ segir Börkur Árnason, varðstjóri hjá lögreglunni á Norðurlandi eystra á Akureyri, í samtali við fréttastofu.
Hann segir lögreglu hafa rætt við manninn og lagt hald á leikfangabyssuna. Hann segir lögreglu farna af vettvangi.