Dægurmálamiðillinn TMZ greindi frá veikindum Weinstein fyrr í dag. Samkvæmt miðlinum var Weinstein lagður inn á Bellevue-spítala í Manhattan fyrir tveimur vikum síðan eftir hjartabilun af völdum lungnabólgu.
Fulltrúi Weinstein sagði við bransamiðilinn Deadline að Weinstein hafi glímt við „alvarlega öndunarerfiðleika“ og væri að jafna sig á spítalanum þar sem hann verði allavega næstu vikurnar. Hann sé kominn á sýklalyf vegna lungnabólgunnar en er ekki búinn að ná sér að fullu.
Weinstein hefur glímt við alls konar veikindi síðustu ár, þar á meðal langvinnt kyrningahvítblæði, lungnabólgu og Covid-19.
Tugir mála yfir margra ára skeið
Tugir kvenna stigu fram í kjölfar MeToo-hreyfingarinnar árið 2017 og sökuðu Weinstein um kynferðisofbeldi sem átti sér stað yfir margra áratuga skeið.
Weinstein var árið 2020 dæmdur í 23 ára fangelsi í New York fyrir að nauðga Jessicu Mann. Þeirri sakfellingu var síðan hnekkt og málið tekið fyrir í tvígang til viðbótar án þess að kviðdómur kæmist að niðurstöðu. Í síðustu viku ákváðu saksóknarar í New York að fella niður ákæruna á hendur kvikmyndaframleiðandanum í samráði við Mann.
Sjá einnig: Treystir sér ekki til að ganga í gegnum fjórðu réttarhöldin
Aðrar sakfellingar Weinsteins standa enn, þar á meðal sextán ára dómur sem hann hlaut í Kaliforníu árið 2022 og hann hefur áfrýjað. Jafnframt bíður hann réttarhalda í öðru kynferðisbrotamáli sem fer fyrir dómara í september næstkomandi.