Flestir ungir kjósendur nálgast upplýsingar um sveitarstjórnarkosningarnar á samfélagsmiðlum, einna helst á TikTok.
Kastljós tók púlsinn á ungum kjósendum á dögunum og spurði meðal annars hvaða málefni skipti þau mestu máli í kosningunum?
„Betri samgöngur. Mér finnst við geta gert mun betur í almenningssamgöngum“ segir Georg Dravis Reynisson, 19 ára, sem kýs í Kópavogi.
Hvernig finnst þér flokkarnir hafa staðið sig í að ná til ungra kjósenda?
„Mér finnst flokkarnir oft barnalegir. Mættu vera skýrari í að gefa upplýsingar og um stefnur sínar,“ segir Georg.
Auður Pétursdóttir kýs á Akureyri. „Mér finnst mikilvægt að flokkarnir séu ekki bara að draga niður aðra flokka heldur frekar setja fram sína stefnu meira og sýna fram á hvernig þeir skera sig frá öðrum flokkum.“