Kjaraviðræður hafa lítið þokast áfram að sögn formanns Félags íslenskra atvinnuflugmanna (FÍA). Samninganefndir flugmanna og Icelandair haldi þó áfram að reyna að ná heyi í hús fyrir sumarið.
Samninganefndirnar undirrituðu sameiginlega yfirlýsingu 16. júní um verkstýrða verkáætlun undir stjórn ríkissáttasemjara. Stefnt væri að því að endurnýja kjarasamninga fyrir 15. september.
Jón Þór Þorvaldsson, formaður FÍA, segir nefndirnar hafa fundað síðast í dag. Til standi að funda aftur bráðum þó að nákvæm tímasetning liggi ekki fyrir.
Einkum hefur verið tekist á um hvíldartíma og vinnufyrirkomulag flugmanna og svokallaða blautleigusamninga í deilunni. Jón Þór segir viðræðurnar ekki einu sinni komnar svo langt. Enn sé nokkuð í að samningar náist og engum stórum áföngum hafi verið náð.
Spurður hvort endurnýjun kjarasamninga fyrir 15. september sé raunhæf segir Jón Þór það vel geta gengið. Báðir samningsaðilar verði að gefa eitthvað eftir til þess að það gangi upp.