Biskupar, prestar og fylgjendur hóps sem er kenndur við Píus X hafa verið bannfærðir af Vatíkaninu. Hópurinn vígði nýja biskupa í gær í óþökk Leós páfa.
Alls voru fjórir vígðir til biskups við hátíðlega athöfn rétt utan við svissneska þorpið Écône í gær - þvert á vilja leiðtogans, Leós páfa, sem hafði varað hópinn við að valda frekari sundrung.
Talið er að fylgjendur Píusar X séu í allt um 600 þúsund. Hreyfingin er íhaldssöm og hefur hafnað flestum umbótum sem Vatíkanið hefur kynnt síðustu áratugi. Sem dæmi eru predikanir enn eingöngu fluttar á latínu.
Það þótti nokkuð ljóst að allir sex biskupar hópsins yrðu bannfærðir en það kom á óvart að allir fylgjendur skyldu hljóta sömu örlög. Því var þó bætt við að þeim sem vildu yfirgefa hópinn og snúa aftur til rómversk-kaþólsku kirkjunnar yrði tekið með einlægri ástúð.
Bannfæring er kirkjuleg refsing sem þýðir í raun að vera útilokaður frá samfélagi kirkjunnar. Bannfæring er afar sjaldgæf í seinni tíð og þykir ákvörðun Vatíkansins því bæði nokkuð hörð og óvenjuleg.