Serj Tankian, hinn armenski söngvari hljómsveitarinnar System of a Down, segir Ísraela nota söguna gegn þjóð hans. Viðurkenning þeirra á þjóðarmorði Armena sé ekkert annað en pólitískt plott.System of a Down er ein vinsælasta þungarokkshljómsveit heims og eru meðlimir hennar allir ættaðir frá Armeníu. Lengi hafa Tankian og félagar barist fyrir viðurkenningu á þjóðarmorði Tyrkja á Armenum árið 1915. Það er þegar á aðra milljón Armena voru drepnir eða fluttir frá heimkynnum sínum. Þar á meðal afi og amma Serj Tankian, sem er fæddur í Beirut í Líbanon.
Rokkstjarna segir Ísraela hræsnara – „Að nota söguna okkar, okkar þjóðarmorð, okkar sársauka til þess að slá pólitískar keilur“