Kona var í júní dæmd til 12 mánaða fangelsisvistar fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás eftir að hún veittist að eiginmanni sínum á heimili þeirra með hnífi. Hún þarf þó aðeins að sitja inni í 3 mánuði, haldi hún skilorð næstu þrjú árin.
Hún er sögð hafa veist í tvígang að manninum með 20 sentímetra löngum hníf og skorið á hann 20 sentímetra sár á vinstra herðasvæði og 7 sentímetra sár á vinstri upphandlegg.
Þetta kemur fram í dómi Héraðsdóms Norðurlands eystra síðan 23. júní, sem fréttastofa fékk afrit af. Dómurinn hefur ekki verið birtur á vef dómstólsins.
Lögregla kölluð út vegna heimilisofbeldis
Lögregla var kölluð út vegna heimilisofbeldis að heimili hjónanna á Húsavík klukkan að verða þrjú, aðfararnótt þriðjudagsins 27. maí 2025. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu hlutu báðir aðilar áverka, annar alvarlega stunguáverka en hafi þó aldrei verið talinn í lífshættu.
Konan játaði sök í málinu fyrir dómi og krafðist vægustu refsingar sem lög leyfa. Með játningunni, auk sönnunargagna í málinu, þótti sannað að hún hefði gerst sek um hættulega líkamsárás.
Við ákvörðun refsingar tók dómari tillit til þess að konan hefði hreinan sakaferil en einnig þess að hún hefði veitt manninum áverka með stórum hníf. Auk fangelsisdóms var henni gert að greiða sakarkostnað, 231.988 krónur.