Tveir menn eru grunaðir um stórfellt fíkniefnalagabrot með því að hafa staðið að innflutningi á rúmlega 14 lítrum af amfetamínbasa með flutningaskipi Eimskips, Dettifossi, í apríl. Mennirnir fengu tvo skipverja til að aðstoða við innflutninginn.
Hafa verið í gæsluvarðhaldi frá því í apríl
Mennirnir fjórir hafa setið í gæsluvarðhaldi frá því í apríl. Búast má við að ákæra verði gefin út innan tíðar. Sex voru handteknir vegna málsins en tveimur hefur verið sleppt.
Samkvæmt gæsluvarðhaldsúrskurðum stóð annar mannanna tveggja að skipulagningu innflutningsins hér á landi. Hinn skipulagði afhendingu og útflutning efnanna og var í samskiptum við söluaðila erlendis, meðal annars í gegnum samskiptaforritið Signal.
Skipverjarnir tveir eru grunaðir um að hafa sótt efnin erlendis og flutt hingað til lands með skipinu.
Íslendingar á þrítugs-, fertugs- og sextugsaldri
Í gögnum máls kemur fram að Dettifoss hafi komið til hafnar í Reykjavík að morgni 13. apríl 2026. Lögregla fylgdist með tveimur skipverjum koma farangri af skipinu og inn í sendibíl, þar sem ökumaður beið. Annar skipverjanna tveggja fór í sendibílinn sem var ekið af stað. Lögregla veitti bílnum eftirför og handtók bæði skipverjann og ökumanninn. Lögregla fór því næst að skipinu og handtók hinn skipverjann, sem var enn um borð. Ökumanninum var síðar sleppt.
Mennirnir tveir voru handteknir í kjölfar handtöku skipverjanna tveggja og gerð húsleit á heimili þeirra beggja. Mennirnir eru allir íslenskir, á þrítugs-, fertugs- og sextugsaldri samkvæmt Vísi.
Lögregla fann efnin í farangrinum. Samkvæmt efnagreiningu reyndust þetta vera rúmlega fjórtán lítrar af amfetamíni í vökvaformi, af styrkleika 47 til 48 prósent.
Samkvæmt upplýsingum frá SÁÁ frá 2023 er götuverð á grammi af amfetamíni um 4.700 krónur og má því ætla að verðmæti efnanna hlaupi á tugum milljóna króna.
Skipverjarnir samstarfsfúsir
Skipverjarnir tveir voru báðir samstarfsfúsir í samskiptum við lögreglu. Í málsgögnum kemur fram að þeir hafi sótt efnin erlendis og komið þeim um borð í skipið. Fyrir það hafi þeir átt að fá greitt. Þriðji maðurinn hafi skipulagt innflutninginn og gefið þeim fyrirmæli í gegnum samskiptaforritið Signal.
Annar skipverjanna tveggja játaði skýlaust sinn þátt í málinu, sem hann segir vera lítilvægan. Í besta falli hafi hann verið einhvers konar burðardýr og þekki ekki aðalmenn málsins. Samkvæmt gæsluvarðhaldsúrskurði er hann ungur að árum með engan sakaferil að baki. Hinn segist sömuleiðis hafa litla aðkomu að málinu. Hann hafi eingöngu haft aðkomu að því á lokadegi skipulagningar, áður en skipið hélt úr höfn.
Höfuðpaurarnir tveir tengjast fjölskylduböndum
Samkvæmt málsgögnum virðast mennirnir tveir sem grunaðir eru um skipulagninguna hérlendis sem og erlendis tengjast fjölskylduböndum í gegnum frænda eiginkonu annars þeirra.
Sá sem er grunaður er um skipulagningu innflutnings efnanna hér á landi hefur alfarið neitað að hafa átt þátt í málinu við skýrslutöku. Lögregla hefur aftur á móti fjarskiptagögn og upptökur úr öryggismyndavélum undir höndum sem sýna endurtekið samræmi milli skilaboða á Signal og ferða mannsins.
Þá sýna gögnin einnig samskipti milli hans og samverkamanns hans, sem grunaður er um að skipuleggja innflutning erlendis.
Í gögnum málsins kemur fram að af þeim samskiptum að dæma sé ljóst að hann hafi séð um samskipti við söluaðila erlendis. Hann hafi til að mynda greint samverkamanni sínum frá því að í Evrópu væri hægt að fá hvað sem er og eins mikið og óskað væri eftir. Þeir hafi rætt um flöskur og að þetta væru 15 lítrar af amfetamínbasa í heildina.
Ákæra væntanleg á næstu dögum
Mennirnir fjórir hafa verið í gæsluvarðhaldi frá handtöku. Fyrst um sinn voru þeir hafðir í einangrun á grundvelli rannsóknarhagsmuna, en frá miðjum maí hafa þeir verið í gæsluvarðhaldi á grundvelli almannahagsmuna.
Á mánudag verða tólf vikur liðnar frá fyrstu handtöku í málinu. Þá voru skipverjar Dettifoss handteknir, en samkvæmt lögum má gæsluvarðhald á rannsóknarstigi ekki vara lengur en tólf vikur án þess að ákæra hafi verið gefin út.