Þann 27. nóvember 2025 sagði Vélfag upp öllum starfsmönnum sínum sökum rekstrarörðugleika í kjölfar viðskiptaþvingana sem fyrirtækið var beitt af hálfu ríkisins. Vélfag er eina íslenska fyrirtækið sem sætt hefur viðskiptaþvingunum vegna meintra tengsla við skuggaflota Rússlands.
Fyrir áramót seldi Vélfag eignir til að standa skil á skuldum og launum en þegar vörslureikningur sem lögmaður Vélfags ætlaði að nota til þess að greiða laun og skuldir var frystur gekk það ekki eftir.
Vélfag var til húsa í Njarðarnesi 3-7 á Akureyri sem er í eigu FM-húsa ehf. Í febrúar birtu FM-hús Vélfagi greiðsluáskorun og riftu síðan leigusamningnum við fyrirtækið. Á mánudaginn var síðan tekin fyrir útburðargerð FM-húsa gegn Vélfagi í Héraðsdómi Norðurlands eystra.
Enginn mætti frá Vélfagi í héraðsdóm. Að sögn Sigurðar G. Guðjónssonar, lögmanns Vélfags, er gott samtal milli Vélfags og FM-húsa en þetta séu hefðbundnir verkferlar þegar félag fer í þrot. Þá þurfi að höfða mál. Vélfag hefur ekkert greitt í leigu á þessu ári. Til standi að tæma húsið á næstu vikum en vinna er í fullum gangi við að selja vélar og tæki til þess að tæma húsnæðið.
Halldór Benjamín Þorbergsson, forstjóri Heima sem á FM-hús, tók í sama streng og Sigurður og sagði að þetta væru bara hefðbundnir ferlar hjá fyrirtækinu þegar leigutaki fari í þrot.