Matvælastofnun (MAST) vill að bæta myndavélum um borð í Hval 8 og Hval 9 í tengslum við eftirlit sitt með hvalveiðum í ár. Eftirlitsmaður myndi kveikja á þeim þegar eftirför dýrs hefst. Þetta væru nýmæli í eftirliti stofnunarinnar með hvalveiðum.
„Stofnunin mun nýta þau gögn ásamt gátlistum sem eftirlitsfólk fyllir út á meðan á veiðunum stendur til að meta hvort veiðarnar hafi farið fram með mannúðlegum hætti og viðbrögð skipverja séu í samræmi við ákvæði reglugerðar um veiðar á langreyðum og lög um velferð dýra,“ segir í skriflegu svari MAST við fyrirspurn fréttastofu.
Hrönn Ólína Jörundsdóttir, forstjóri MAST, segir að myndavélarnar gætu orðið til þess að framkvæmd eftirlitsins yrði einfölduð töluvert. „Við erum að skoða hvort við getum beitt sjálfvirkari aðferðum til að taka upp sjálfar veiðarnar.“
Verið er að skoða lagalegu hliðina á að koma myndavélum fyrir.
Eftirlit aukið 2022
Eftirlit með hvalveiðum var aukið árið 2022 og eftirlitsmenn Fiskistofu hafa sinnt því um borð í bæði Hval 8 og Hval 9.
„[Þeir] sinna tvenns konar eftirliti, annars vegar eftirliti með búnaði og áhættu skipverja sem Fiskistofa er eftirlitsaðili með og hins vegar hefur Matvælastofnun samið við Fiskistofu um að framkvæma eftirlit Matvælastofnunar með velferð langreyða við veiðar,“ segir í svari MAST.
Stofnunin hefur einnig landeftirlit þegar langreyði er landað. Þar er lagt mat á ástand dýrs, velferð og matvælaöryggi.
Þurftu að endurgreiða Hval sex milljónir
Árið 2022 barst MAST reikningur vegna kostnaðar Fiskistofu við eftirlitið það ár sem stofnunin innheimti hjá Hval hf. Fyrirtækið greiddi þjónustugjöldin en setti þann fyrirvara á að gjaldtakan væri án lagastoðar.
Hvalur kærði málið til héraðsdóms þar sem fyrirtækið krafðist endurgreiðslu á eftirlitsgjöldunum. Úr varð að Matvælastofnun endurgreiddi Hval allan kostnað vegna eftirlits starfsmanna Fiskistofu fyrir sína hönd ásamt dráttarvöxtum.
Samkvæmt svari stofnunarinnar nam sú upphæð 6,2 milljónum króna.
Hvalur hf. greiðir nú fyrir eftirlitið
Fyrir vertíðina 2023 tók ný reglugerð um langreyðaveiðar gildi. „Því var Matvælastofnun heimilt að endurrukka Hval hf. fyrir eftirlit sem eftirlitsmenn Fiskistofu framkvæmdu að beiðni Matvælastofnunar fyrir vertíðina 2023,“ segir í svari MAST.
„Með uppfærðri reglugerð fellur þetta eftirlit að sömu lögmálum og annað eftirlit Matvælastofnunar sem við höfum gjaldskrárheimild fyrir.“
Það er eftirlitsþegi, í þessu tilfelli Hvalur hf., sem greiðir fyrir eftirlitið. Gjaldskrá Matvælastofnunar kveður á um að gjald skuli alltaf standa undir kostnaði við framkvæmd þess.
Kostnaður við eftirlitið árið 2023 liggur enn ekki fyrir og MAST hefur ekki áætlað kostnaðinn við það í ár. „Enda eru þar óvissuþættir sem stofnunin hefur ekki stjórn á eða yfirsýn yfir,“ segir í svari MAST.
Eftirlitinu í ár verður hagað með svipuðum hætti og árið 2023 enda er sama reglugerð um langreyðaveiðar í gildi og þá.