Ísland stefnir að lögregluríki

Hallur Hallsson skrifar:
Mannréttindi, stjórnsýslulög og Stjórnarskrá voru þverbrotin þegar hátæknifyrirtækið Vélfag á Akureyri var keyrt í gjaldþrot haustið 2025 á grundvelli þriggja ára laga nr. 68/2023 um þvingunaraðgerðir færðar í utanríkisráðuneytið. Arionbanki tók að sér refsivald utan laga og réttar. Utanríkisráðuneytið bar út sakargiftir á hendur svissneskum meirihlutaeiganda ríkisborgara á evrópska efnahagssvæðinu og sakaði um Rússatengsl. Ivan Kaufmann var réttlaus á Íslandi. Ævistarf Vélfagsfjölskyldunnar frá Ólafsfirði var lagt í rúst, hátæknifyrirtæki eyðilagt á fáum mánuðum. Þann 21. janúar 2026 sigaði Héraðssaksóknari lögreglusveitum á fjölskylduna sem hafði skapað eitt glæsilegasta hátæknifyrirtæki landsins með höfuðstöðvar á Akureyri og um 40 manns í vinnu framleiðandi tímamóta fiskvinnsluvélar.
Lögregluofbeldi í boði Utanríkisráðuneytisins
Fjölskyldan var handtekin, hjónin Bjarmar Sigurgarðarson, Ólöf Ýr Lárusdóttir ásamt dóttur Silfá Bjarmadóttir og Elvar Stefánsson. Fólk var handjárnað, yfirheyrt og varpað í fangaklefa á Akureyri með réttarstöðu sakborninga. Silfá var handtekin fyrir framan 8 og 10 ára syni sína, Elvar var að skutla þriggja ára dóttur þeirra á leikskóla, stoppaður á blikkandi ljósum á miðri götu á Akureyri, skipað út úr bíl sínum, handjárnaður fyrir aftan bak, skellt í lögreglubíl, keyrður á lögreglustöðina og varpað í fangaklefa. Kæruefni mun ekki hafa verið kynnt. Stjórnarformaður Alfreð Tulinius á hækjum eftir aðgerð á mjöðm var handtekinn og rægður vegna ævistarfs síns.
Aðförin að Vélfagi til heimabrúks
Ásökunarefni eru Rússatengsl. Hin handteknu munu enn með réttarstöðu sakborninga. Aðförin að Vélfagi var til heimabrúks í utanríkisráðuneyti Þorgerðar Gunnarsdóttur sem fimm sinnum krafðist að Vélfag yrði komið í íslenskar hendur; eitruð eru tengsl stjórnsýslu og viðskipta og það ekki í fyrsta sinn. Ólafsfirðingurinn Inga Sæland tók þátt í aðförinni. Hæstiréttur sýknaði ríkið af kröfum Vélfags vegna frystingar fjármuna. Lögregluofbeldið á hendur fjölskyldunni var ekki tekið fyrir í Hæstarétti. Vélfag sætti frystingu bankaviðskipta í Arionbanka á grundvelli fyrrnefndra laga um alþjóðlegar þvingunaraðgerðir og frystingu fjármuna í samvinnu við Seðlabanka Íslands og Skattinn. Ríkið algerlega fríað.
Hæstiréttur með flýtimeðferð um sýknu en ekkert liggur á að dæma um lögregluofbeldið. Enginn þingmaður hefur spurst fyrir um ofbeldið gegn fjölskyldunni. Ráðuneyti Þorgerðar kveður dóminn vitnisburð “...um vandaða stjórnsýslu.“ Rúv og Sýn tekið höndum saman í rógi á hendur fólkinu. Ísland stefnir hraðbyri að lögregluríki.
