Dómsmálaráðuneytið hefur skrifað undir samning við Alþjóðafólksflutningastofnunina, IOM, um framkvæmd DNA-sýnatöku og aðstoð við afhendingu ferðaskilríkja vegna fjölskyldusameininga hér á landi.
Íslensk stjórnvöld hafa til þessa ekki látið framkvæma DNA-rannsóknir til að staðfesta fjölskyldutengsl áður en dvalarleyfi er veitt.
Samkvæmt tilkynningu dómsmálaráðuneytisins hafa nokkur tilfelli komið upp á undanförnum þar sem DNA-rannsókn eftir komu til Íslands hefur leitt í ljós að barn sé ekki líffræðilega skylt meintu foreldri. Það hafi flækt málsmeðferð.
Erfitt hafi reynst að staðfesta fjölskyldutengsl í upprunaríki og stjórnvöld þurft að meta hvað er barninu fyrir bestu og tryggja því viðeigandi umsjá hér á landi.
Heildarkostnaður 72,7 milljónir
Í tilkynningunni segir að til þessa hafi verið flókið að taka DNA-sýni. Það geti verið nauðsynlegt að gera þegar umsækjendur koma frá ríkjum þar sem opinber gögn eru talin óáreiðanleg, fölsun gagna er algeng eða skráningu í manntal ábótavant.
Útlendingastofnun hafi í slíkum tilvikum veitt fólki dvalarleyfi á grundvelli fjölskyldusameiningar með þeim fyrirvara að DNA-rannsókn fari fram eftir komuna til Íslands.
Þá hafi einnig reynst erfitt að afhenda fólki sem hefur fengið dvalarleyfi á grundvelli fjölskyldusameiningar bráðabirgðaferðaskilríki eða vegabréfsáritanir.
Heildarkostnaður við samninginn nemur um 505 þúsund evrum eða 72,7 milljónum íslenskra króna og gildir hann til 31. desember 2028. Fjármögnun samningsins er tryggð og ónotað fjármagn verður endurgreitt til ráðuneytisins. Útlendingastofnun verður aðaltengiliður við IOM og leggur fram beiðnir um vinnslu einstakra mála.