Bandarískur ferðamaður segir Ísland hafa verið mun dýrara en hann átti von á, sérstaklega maturinn. Aðeins eitt hafi verið tiltölulega ódýrt. Honum segist hafa líkað landið en ætlar sér ekki að koma aftur.„Landið var fallegt en dýrara en ég hafði gert mér grein fyrir,“ segir ferðamaðurinn í færslu á samfélagsmiðlinum Reddit.Maturinn rándýrEinkum hafi það verið maturinn sem hafi verið dýr. Og ekki aðeins fínn matur á veitingastöðum heldur allur matur. Sem dæmi hafi tvær pylsur á bensínstöð og gosdrykkur kostað tæplega 20 dollara, það er rúmlega 2500 krónur.
Ferðamaður nefnir það eina sem var ódýrt á Íslandi – „Ég ætla ekki að koma aftur“