Framsóknarflokkurinn virðist eindregið á móti því að segja já í þjóðaratkvæðagreiðslunni 29. ágúst. Í hugum margra – sérstaklega yngri kjósenda – er þetta hin náttúrulega afstaða Framsóknar, annað væri eiginlega óhugsandi. Þetta er þó mikill misskilningur og söguleg gleymska. Ef allt væri með felldu í elsta stjórnmálaflokki landsins ætti að minnsta kosti helmingur forystumanna og almennra flokksmanna að segja já í kosningunum.
Birgir Hermannsson skrifar: Framsókn og ESB