Hagnaður af grunnrekstri Landsvirkjunar á öðrum ársfjórðungi nam 8,7 milljörðum króna og handbært fé frá rekstri 6,7 milljörðum. Þetta kemur fram í árshlutareikningi Landsvirkjunar.
Tekjur Landsvirkjunar af raforkusölu jukust um 19% milli ára og segir í tilkynningu að hækkunina megi einkum rekja til hærra raforkuverðs til stórnotenda vegna hækkunar álverðs. Fjárhagsstaða fyrirtækisins sé áfram sterk og eiginfjárhlutfall 61%.
„Rekstur Landsvirkjunar gekk vel á öðrum ársfjórðungi og afkoman var traust,“ er haft eftir Herði Arnarsyni, forstjóra Landsvirkjunar. „Hærra álverð studdi við tekjuvöxtinn, en á móti vógu minni raforkukaup, meðal annars vegna tímabundinna erfiðleika í rekstri Norðuráls, en uppkeyrsla verksmiðju fyrirtækisins gengur nú vel.“
Aðstæður í kísiliðnaði hafi einnig verið krefjandi, sem endurspeglist í stöðvun rekstrar PCC og tímabundinni stöðvun eins ofns hjá Elkem.