Héraðssaksóknari hefur ákært mann fyrir stórfellt brot í nánu sambandi, nauðgun og kynferðisbrot gegn barni. Manninum er gefið að sök að hafa um rúmlega mánaðar skeið síðastliðið vor, þ.e.a.s. frá apríl til 8. maí, haft í fjölda skipta samræði og önnur kynferðisbrot gegn 12 ára stúlku á sameiginlegu heimili þeirra. Í ákæru er hann sagður hafa nýtt sér yfirburði sína og aldursmun og notfært sér að stúlkan gat hvorki spornað við verknaðinum né skilið þýðingu hans, vegna ungs aldurs og eftir atvikum svefndrunga, en hún var undir áhrifum lyfja sem hinn ákærði gaf henni.
Svívirðileg brot gegn fósturbarni: Byrlaði 12 ára stúlku lyf og nauðgaði henni margsinnis