Guðni Th. Jóhannesson, sagnfræðingur og fyrrverandi forseti Íslands, telur að Íslendingar verði að tryggja full yfirráð yfir sjávarauðlindinni strax í upphafi aðildarviðræðna við Evrópusambandið, annars muni Íslendingar ekki hafa áhuga á að ganga í sambandið. Þetta sagði Guðni í Silfrinu í gærkvöldi en viðtalið við hann hefur vakið mikla athygli og töluverða umræðu á samfélagsmiðlum.
Misjafnar skoðanir eftir orð Guðna: „Fleira undir sólinni en fiskur“