Héraðssaksóknari hefur ákært tvo karlmenn á fertugsaldri og eina konu á fimmtugsaldri fyrir tilraun til stórfellds fíkniefnalagabrots. Fólkið, sem er íslenskt, er sagt hafa staðið í félagi að innflutningi á rétt rúmlega einu kílói af kókaíni með 88-89% styrkleika en fíkniefnin voru falin í póstsendingu sem póstlögð var frá Frakklandi 26. ágúst árið 2024. Var sendingin skráð á erlendan mann í Ármúla í Reykjavík, en sá maður er ekki ákærður í málinu.
Þrír Íslendingar í vanda eftir dularfulla póstsendingu frá Frakklandi – Kona og tveir karlar ákærð