Búast má við umferðartöfum á meðan unnið er að Sæbrautarstokki. Gert er ráð fyrir að framkvæmdir taki þrjú til fimm ár. Þegar mest lætur fara að meðaltali sjötíu vörubílar með jarðefni frá Sæbraut upp í Ölfus.
Fjallað var um fyrirhugaðar framkvæmdir á fundi umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkur í síðustu viku.
Svæðið kemur til með að gjörbreytast eftir að vegurinn verður lagður í stokk. Á um eins kílómetra löngum kafla verður grafið niður á næstum tíu metra dýpi og lagður stokkur eða göng fyrir akandi umferð.
Stokkurinn verður á Sæbrautinni frá Miklubraut og norður fyrir gatnamót Kleppsmýrarvegar og Skeiðarvogs. Þar verða ný gatnamót byggð ofan á norðurhluta stokksins. Í stokknum verða tvær akreinar í hvora átt auk aðreina og fráreina.
Fyrst á dagskrá er að gera hjáleið fyrir umferð meðan á framkvæmdum stendur. Til þess þarf að rífa hús neðan við Sæbrautina, þar á meðal hús þar sem lágmyndir eftir Gerði Helgadóttur prýða veggina. Þær ber að vernda og varðveita. Allar breytingar á byggingunni og lóðinni þarf því að gera í samráði við Gerðarsafn, Borgarsögusafn Reykjavíkur og Minjastofnun Íslands.
Þrátt fyrir hjáleiðina má búast við töluverðum umferðartöfum á framkvæmdatíma, en á hverjum degi fara hátt í þrjátíu þúsund bílar þar um og margir kannast við umferðarteppuna þegar fólk er á leiðinni til eða frá vinnu.
Mestu áhrifin á umferðina eru vegna mannvirkjagerðar með sprengingum og fleygun, efnistöku og efnisflutninga, og truflunar á bílaumferð með lokun á hluta akreina og gatnamóta. Vegna nálægðar við íbúabyggð verður ekki unnið á nóttunni. Á sama tíma verður ráðist í breytingar á gatnamótum Reykjanesbrautar og Bústaðavegar.
70 vörubílar á dag í 15 mánuði
Jarðefnið sem verður grafið upp til að rýma fyrir stokknum er um 450 þúsund rúmmetrar. Til að setja þetta í samhengi þá er það efni sem gæti fyllt tíu Laugardalshallir.
Efnið verður að mestu ferjað út úr bænum upp í Ölfus, um tuttugu kílómetra leið, samtals um 25 þúsund bílferðir, eða um sjötíu vörubílar á dag í fimmtán mánuði. Þá þarf líka að ferja efni í stokkinn inn á svæðið, um 150 þúsund rúmmetra. Það væru um tíu þúsund vörubílaferðir.
Til samanburðar má geta þess að við framkvæmdir á nýjum Landspítala voru farnar um átján þúsund vörubílaferðir.
Ofan á stokknum verða göngu- og hjólaleiðir. Burðarþol stokksins þarf að vera þannig að hægt verði að móta landslag ofan á honum og planta trjám. Þá þurfa þungir neyðarbílar að geta keyrt þar.
Talið er að framkvæmdir geti tekið þrjú til fimm ár, eða frá 2027-2032. Eftir að þeim er lokið eru áhrifin á umferðina metin talsvert jákvæð.