Heilt yfir fóru Goslokahátíð í Vestmannaeyjum og Írskir dagar á Akranesi vel fram, að sögn lögreglu.
Tvö stór mót voru haldin á Akureyri um helgina. Þar er maður grunaður um minniháttar líkamsárás. „Það kom til handalögmála. Smá misskilningur á einhverju dansgólfinu,“ segir Heimir Heiðarsson, varðstjóri hjá lögreglunni á Norðurlandi eystra.
Hann telur að enginn hafi þurft að leita á bráðamóttöku vegna þessa.
Allt hefur gengið vel fyrir sig í bænum. Þar var fjölmenni komið til að vera við N1-mótið og Pollamótið um helgina.
Eitthvað um unglingadrykkju og ölvunarakstur
Á Akranesi gengu Írskir dagar vel fyrir sig, að sögn Ásmundar Kristins Ásmundssonar yfirlögregluþjóns. „Það var eitthvað um unglingadrykkju og ölvunarakstur en gekk yfir það heila mjög vel.“
Hann segir hefðbundið að eitthvað komi upp þegar stórar hátíðir fara fram en engin slys eða alvarlegar uppákomur rötuðu á borð lögreglu.
Í Vestmannaeyjum gekk allt vel í tengslum við Goslokahátíð.
„Hingað til hefur ekki verið tilkynnt um neitt alvarlegt til okkar. Helgin er búin að ganga vel. Hún fær toppeinkunn,“ segir Stefán Jónsson yfirlögregluþjónn í Vestmannaeyjum.