Hallgrímur Jónasson er fallinn frá

Hallgrímur Jónasson, fyrrverandi flugstjóri og atvinnuflugmaður, lést á líknardeild Landspítalans 29. júní síðastliðinn. Hann var á 81. aldursári.
Morgunblaðið greindi frá andláti hans.
Hallgrímur fæddist á Akureyri 9. júlí 1945 og ólst þar upp. Hann lauk atvinnuflugmannsprófi árið 1966 og aflaði sér síðar frekari réttinda í Bandaríkjunum og Danmörku. Á löngum ferli starfaði hann meðal annars hjá Flugsýn, Flugfélagi Íslands, Sterling Airways og Flugleiðum. Þá flaug hann um árabil hinni sögufrægu DC-3-vél Páli Sveinssyni við landgræðslustörf.
Árið 1986 neyddist Hallgrímur til að láta af atvinnuflugi eftir alvarleg veikindi og hjartaaðgerð í Bandaríkjunum. Hann starfaði síðar hjá Olís, Flugmálastjórn, Mastercard og Borgun.
Hallgrímur gegndi jafnframt fjölmörgum trúnaðarstörfum fyrir Félag íslenskra atvinnuflugmanna og sinnti félagsmálum hestamanna af miklum áhuga.
Hann lætur eftir sig fjögur börn.