Yfirvöld á Kyrrahafseyjum Guam og Norður-Marianas-eyja undirbúa komu ofurfellibyls sem búist er við að skelli á í dag. Búist er við vindhraða allt að 78 metrum á sekúndu og rúmlega níutíu í kviðum.
Langar raðir hafa myndast á bensínstöðvum og í verslunum síðustu daga þar sem íbúar búa sig undir óveðrið. Um 210.00 búa á þessu svæði og lögregla hefur aukið viðbúnað til muna. Lögreglumenn hafa í dag ekið um byggðir og hvatt fólk til að leita skjóls áður en bylurinn skellur á.