Reykjavíkurborg hefur kært þá ákvörðun Umhverfis- og orkustofnunar að borgin skuli loka gömlu ruslahaugunum í Gufunesi og vakta þá. Telur stofnunin mikilvægt að haugarnir verði vaktaðir í ljósi þess að þar hafi verið um árabil verið urðuð óflokkuð spilliefni. Segir stofnunin að fylgjast verði með mögulegum áhrifum efnanna á grunn- og yfirborðsvatn á svæðinu. Reykjavíkurborg neitaði að greiða reikning frá stofnuninni vegna fyrirmælanna.
Reykjavíkurborg og ríkið deila um gamla ruslahauga - Óttast möguleg áhrif spilliefna á grunnvatn