Nóróveirusýking kom upp á Heilsusetri Sóltúns á Sólvangi um síðustu helgi.
„Um þrettán skjólstæðingar og nokkrir starfsmenn fundu fyrir mismiklum einkennum, en enginn veikst alvarlega, þar af hafa 3 tilfelli verið staðfest með sýnatöku,“ segir Halla Thoroddsen, forstjóri Sóltúns heilbrigðisþjónustu, í skriflegu svari við fyrirspurn fréttastofu.
Sóltún Heilsusetur er endurhæfingarúrræði á Sólvangi í Hafnarfirði fyrir eldra fólk í sjálfstæðri búsetu. Á Sólvangi eru rekin 43 endurhæfingarrými, 75 hjúkrunarrými og 38 dagdvalarrými.
Barst ekki á hjúkrunardeildir
Halla segir sýkinguna ekki hafa borist yfir á hjúkrunardeildir Sólvangs og að hún sé á hraðri niðurleið. Hún væntir þess að þetta verði afstaðið innan fárra daga.
Halla segir að um leið og grunur vaknaði um smit hafi deildin verið einangruð og skjólstæðingar ekki farið í sameiginlega sjúkra- og iðjuþjálfun með hjúkrunarheimilinu. Þá var innskriftum frestað og heimsóknir afþakkaðar.
„Sýkingin hefur ekki dregið úr endurhæfingu einkennalausra skjólstæðinga en farið er ítarlega eftir sóttvarnarfyrirmælum í allri þjónustu,“ segir hún.
Einn skjólstæðingur ákvað að útskrifast og einhverjir fóru heim í helgarleyfi og snúa aftur á morgun.