Einn þriggja Íslendinga sem eru í gæsluvarðhaldi vegna smygls á 106 kílóum af kókaíni frá Brasilíu til Straumsvíkur í síðustu viku var fyrir fimmtán árum dæmdur fyrir manndráp og hefur áður sætt gæsluvarðhaldi grunaður um tengsl við stórfelld fíkniefnamál.
Fram kom í gær að þrír Íslendingar og sex útlendingar – meðal annars Brasilíumenn og Rúmeni – sætu í gæsluvarðhaldi vegna málsins. Samkvæmt upplýsingum fréttastofu er einn Íslendinganna Lárus Freyr Einarsson, sem árið 2011 fékk fjórtán ára fangelsisdóm í Danmörku fyrir að skjóta konu til bana í Horsens.
Hann var jafnframt hnepptur í gæsluvarðhald í ársbyrjun 2020, grunaður um aðild að stórfelldri amfetamínframleiðslu í sumarbústað í Kjós. Það mál var hins vegar fellt niður gagnvart honum þótt aðrir hafi verið dæmdir. Þá hefur hann komið við sögu lögreglu í fleiri málum.
Athygli vekur að Lárus birti á samfélagsmiðlum árið 2017 myndir af sér með köfunarbúnað í Straumsvík, en kílóin 106 í málinu núna voru geymd í sjókistu skipsins undir sjávarmáli og sótt af kafara.
Samkvæmt heimildum fréttastofu fundust um 30 kíló af þessum efnum í bíl á vegum Lárusar.
Skýrslutökur af einhverjum sakborninganna hafa staðið yfir í gær og í dag. Samkvæmt heimildum fréttastofu eru frekari lögregluaðgerðir og mögulega handtökur fyrirhugaðar í dag eða næstu daga.