Vatn flæddi inn á flugstöðina í Kastrup í morgun með þeim afleiðingum að loka þurfti nokkrum verslunum og veitingastöðum.
Í frétt danska ríkisútvarpsins, DR, segir að vatnið hafi fossað ofan úr loftinu, en ástæðan var, að sögn upplýsingafulltrúa flugvallarins, að iðnaðarmenn að störfum í flugstoðinni óku á rör tengt eldvarnarkerfinu þannig að það fór í sundur.
Atvikið hafði ekki teljandi áhrif á starfsemi flugvallarins og allar flugferðir voru á áætlun. Verið er að klára að þurrka upp vatnið.