Í dag hafa bæði kvennaíþróttir og þeir sem leggja áherslu á skýrt málfar um kyn unnið mikilvægan sigur í Hæstarétti Bandaríkjanna (SCOTUS).
Hæstirétturinn komst að þeirri niðurstöðu að einstök ríki hafi heimild til að banna líffræðilegum körlum að keppa í kvennaíþróttum. Dómstóllinn staðfesti lög í Idaho og Vestur-Virginíu sem veita ríkjunum heimild til að setja reglur um þátttöku í íþróttum út frá líffræðilegu kyni, með það að markmiði að tryggja öryggi og sanngjarna samkeppni kynjanna.
Það er högg fyrir LGBT-aðgerðasinna sem hafa barist fyrir því að leyfa körlum sem ,,skilgreina sig“ sem konur að ganga í kvennalið. Þeir hafa haldið fram að karlmenn séu konur.
Niðurstaða dómsins
Með sex atkvæðum gegn þremur úrskurðaði Hæstiréttur að ríkin brjóti ekki lög krefjist þeir að keppendur taki þátt í þeim keppnisflokkum sem samræmast líffræðilegu kyni þeirra.
Dómurinn bindur enda á margra ára tilraunir til að hnekkja lögum í Idaho og Vestur-Virginíu sem hafa það að markmiði að vernda kvennaflokka í bæði framhalds- og háskólaíþróttum. Í dómnum er notað skýrt orðalag þar sem karlar sem skilgreina sig sem konur eru nefndir karlar.
Rökstuðningur
Meirihluti dómaranna lagði áherslu á að líffræðilegur munur gæti skapað bæði hættulegar aðstæður og samkeppnisforskot í líkamlega krefjandi íþróttum, og að kvenkyns íþróttafólk ætti rétt á öruggu og sanngjörnu keppnisumhverfi.
Áhrif dómsins
Dómurinn er talinn stórsigur fyrir þá sem vilja vernda kvennaíþróttir og veitir lagalegan stuðning við sambærilega löggjöf í öðrum ríkjum Bandaríkjanna.
Jafnframt er því haldið fram að niðurstaðan geti orðið öðrum löndum hvatning, bæði hvað varðar vernd kvennaíþrótta og notkun á skýru og gagnsæu málfari þegar rætt er um kyn. Auðvitað eiga öll lönd heimsins að taka þennan dóm til fyrirmyndar og eftirbreytni stúlkna og kvenna vegna.
OL nefndin
Alþjóðaólympíunefndin tilkynnti í mars nýja stefnu þar sem körlum sem telja sig vera konur er bannað að keppa í kvennaflokki.
Árið 2025 tilkynnti NCAA bann við því að karlar keppi í kvennaflokkum. Deildin gaf þetta út eftir forsetatilskipun Donald Trumps sem hótaði að fjármagn yrði stoppað til skóla og háskóla sem skipta ekki íþróttadeildum eftir líffræðilegu kyni.
Hvað með Ísland?
Nú er þess beðið að Íþróttasamband Íslands, með Willum Þór í fararbroddi, taki ávörðun fyrir íslenskar stúlkur og konur. Það er vel þekkt að innan frisbígolfsins keppir karlmaður í kvennaflokki af því hann skilgreinir sig sem konu, og hefur haft vinningssæti af konum. Engin kona hefur unnið kvennaflokk í 10 ár. Er það ásættanlegt?
Nú hljótum við að fá viðbrögð frá ÍSÍ og hinum ólíku íþróttasamböndum. Sanngirni og jafnrétti er undir og margir segja mannréttindi kvenkynsins.
Hér má lesa um málið: SCOTUS says states can ban men from competing in women’s sports
Helga Dögg Sverrisdóttir