Thylane Lena-Rose Blondeau var aðeins sex ára gömul þegar hún prýddi síður Vogue og var kölluð „fallegasta stúlka veraldar“, en síðan hafa liðið tuttugu ár og stúlkan er nú orðin fullorðin kona sem gifti sig á dögunum. Thylane er dóttir franska fótboltamannsins Patrick Blondeau og frönsku fjölmiðlakonunnar Veronika Loubry. Thylane byrjaði að sitja fyrir fimm ára gömul og vakti snemma athygli fyrir fegurð sína. Hún vakti svo heimsathygli þegar hún sat sex ára gömul fyrir franska tímaritið Vogue Enfants árið 2006.
Manstu þú eftir „fallegustu stúlku veraldar“? - Svona leit hún út á brúðkaupsdegi sínum 20 árum síðar