Opinbera hlutafélagið Göng og brú ohf. hefur verið stofnað um fjármögnun og uppbyggingu samgöngumannvirkja á grundvelli laga um innviðafélag sem samþykkt voru á Alþingi.
Markmið félagsins er að flýta fyrir þjóðhagslega mikilvægum samgönguframkvæmdum, að því er segir í tilkynningu frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu.
Þar segir að félagið muni starfa á sjálfbærum fjárhagslegum grunni og mun fjármögnun að mestu byggja á notendagjöldum og lánsfjármögnun á almennum markaði. Þó er einnig heimilt að sækja fjármagn frá lífeyrissjóðum og öðrum sérhæfðum fjárfestum.
Félagið er stofnað á grunni Vaðlaheiðarganga hf. og mun fara með eignarhald og rekstur Vaðlaheiðarganga frá og með deginum í dag.
Alþingi mun hafa stefnumótandi aðkomu að rekstri Ganga og brúar í gegnum samgönguáætlun, þar sem verkefni sem félaginu stendur til boða að taka að sér verða tilgreind. Auk Vaðlaheiðarganga er samkvæmt lögum heimilt að fela félaginu eignarhald á brúm yfir Ölfusá og Hornafjarðarfljót. Þá er ráðgert að félagið sjái um framkvæmdir á Fljótagöngum.
„Mikilvægi félagsins sést ekki síst í því að 9 ár eru liðin frá því síðustu framkvæmdir hófust við gangnagerð á Íslandi,“ segir í tilkynningu.