Kanada verður meðal keppenda í Eurovison, Söngkeppni evrópskra sjónvarpsstöðva, á næsta ári. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef EBU, Sambandi evrópskra sjónvarpsstöðva.
Kanada verður þar með annað landið utan Evrópu til að fá þátttökurétt í keppninni, en Ástralía hefur tekið þátt frá árinu 2015.
Kanada yrði fjórða ríkið sem er alfarið utan Evrópu til að keppa í Eurovision. Auk Ísraels og Ástralíu tók Marokkó þátt í keppninni árið 1980.
Kanadíska ríkisútvarpið, CBC/Radio Canada, fékk fulla aðild að EBU í vikunni. Landið hefur um árabil verið áheyrnarmeðlimur í EBU.
CBC mun tilkynna síðar á þessu ári hvernig framlag Kanada verður valið.
Haft er eftir Marie-Philippe Bouchard, forstjóra CBC, í tilkynningu EBU að Kanadamenn séu spenntir fyrir að kynna hæfileikafólk á sviði tónlistar. Hinir fjölmörgu Eurovision-aðdáendur Kanada fái loks að kjósa í keppninni auk þess að sjá sinn eiginn fulltrúa á stóra sviðinu.